Atvinnu- og menningarmálanefnd - 125. fundur - 27. apríl 2015
Dagskrá:
1. |
Styrkir til menningarmála 2015 - 2015020020 |
|
Lagðar eru fram umsóknir 8 aðila um styrk til menningarmála í vorúthlutun 2015. |
||
Teknar eru til afgreiðslu styrkbeiðnir til menningarmála, vegna vorúthlutunar 2015. Atvinnu- og menningarmálanefnd samþykkir að úthluta menningarstyrkjum, samtals að fjárhæð kr. 750.000,- til eftirfarandi umsækjenda: |
||
|
||
2. |
Frumkvöðlastyrkir 2014 - 2014030013 |
|
Á 122. fundi atvinnu- og menningarmálanefndar kynnti nefndin sér framkvæmd frumkvöðlastyrkja Ísafjarðarbæjar og taldi rétt að vinna að endurskoðun fyrirkomulags frumkvöðlastyrkja, nefnir sem dæmi að leggja áherslu á einyrkja og atvinnuþátttöku kvenna. |
||
Atvinnu- og menningarmálanefnd ákveður að kalla til fulltrúa frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Ísafirði og Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða á næsta fund atvinnu- og menningarmálanefndar. |
||
|
||
3. |
Bæjarlistamaður 2014 og 2015 - 2014120012 |
|
Reglur um bæjarlistamann Ísafjarðarbæjar teknar til umræðu. |
||
Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingar atvinnu- og menningamálanefndar á reglum um tilnefningu bæjarlistamanns Ísafjarðarbæjar. |
||
|
||
4. |
Nýting á húsnæði Ísafjarðarbæjar, Engi - 2015030069 |
|
Lögð er fram beiðni bæjarstjóra um að skoða mögulegar leiðir við nýtingu hússins Engi, Ísafirði. |
||
Atvinnu- og menningamálanefnd fór í heimsókn í húsið Engi, Ísafirði sem er í eigu Ísafjarðarbæjar. Atvinnu- og menningarmálanefnd skoðar hvort ráðlagt sé að nýta húsið fyrir listamenn eða nýsköpun. Ákveðið var að kalla til fundar þá sem hefðu uppi hugmyndir um hvernig hægt væri að nýta húsið til framtíðar. Málinu er því frestað og verður tekið aftur fyrir á næsta fundi nefndarinnar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30
Inga María Guðmundsdóttir |
|
Stefanía Helga Ásmundsdóttir |
Björn Davíðsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |