Almannavarnanefnd – sameinuð - 22. fundur - 26. desember 2013
Dagskrá:
1. Veður sl. daga og næstu daga.
Til fundar er mættur Magni Jónsson frá Veðurstofu Íslands.
Spáð er úrkomubakka yfir Vestfjörðum í nótt og á morgun og hætta á snjóflóðum. Reitur 9 var rýmdur í gær (KNH skemman, Seljaland, Grænigarður og Netagerðin). Höfði er mannlaus sem og Engi. Í gærkvöldi kom flóð úr Steiniðjugili og niður á Skutulsfjarðarbraut, var þeim vegakafla lokað í gærkvöldi. Opnað undir eftirliti í morgun 26. des. þegar snjóathugunarmenn voru búnir að skoða hlíðina. Lítið flóð fell úr Hraunsgili og eitt á Eyrarhlíð, þó ekki yfir veg.
Ákveðið var á fundinum í samráði við Veðurstofu Íslands að hafa ekki lokað né eftirlit á Skutulsfjarðarbraut og Eyrarhlíð enda munu Vegagerðin og Lögreglan tryggja að vegurinn verði auður og hindrunarlaus í nótt.
Súðavíkurhlíð verður lokuð áfarm og litlar líkur á að hún verði opnuð á morgun.
Hraun verður rýmt um miðnætti.
2. Fréttatilkynningar
Eftirfarandi fréttatilkynningar hafa verið sendar út frá síðasta fundi.
23. desember kl. 12:00
23. desember kl. 16:40
24. desember kl. 14:00
25. desember kl. 16:00
Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og undirrituð. Fundi slitið kl. 18:30.
Hlynur H.Snorrason, yfirlögregluþjónn.
Jóhann Birkir Helgason, bæjartæknifræðingur.
Þorbjörn Sveinsson, slökkviliðsstjóri.
Sigurður Mar Óskarsson, fulltrúi björgunarsveita.
Þorsteinn Jóhannesson, yfirlæknir.
Ómar Már Jónsson sveitarstjóri
Barði Ingibjartsson