Almannavarnanefnd – sameinuð - 21. fundur - 22. desember 2013
Dagskrá:
1. Óveðurspá.
Undir þessum lið eru mættir Rúnar Óli Karlsson og Örn Ingólfsson frá Veðurstofu Íslands. Í símasambandi er Þorsteinn Jónsson veðurfræðingur. Spáin er mjög slæm næstu daga og fram á miðvikudag 25. des.
Nefndin gaf yfirlögregluþjóni heimild til að loka vegum í samráði við Vegagerðina þegar og ef þess gerist þörf.
2. Samskipti við Orkubú Vestfjarða.
Haft var samband við Halldór Magnússon hjá OV vegna stöðu mála. Varaafl er í góðu lagi og olíubirgðir í toppstandi. OV gerir ráð fyrir að funda á morgun um framhaldið.
3. Fréttatilkynning.
Gerð var fréttatilkynning og hún send út.
Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og undirrituð. Fundi slitið kl. 17:15.
Jóhann Birkir Helgason, bæjartæknifræðingur.
Hlynur H.Snorrason, yfirlögregluþjónn.
Þorbjörn Sveinsson, slökkviliðsstjóri.
Sigurður Mar Óskarsson, fulltrúi björgunarsveita.
Þorsteinn Jóhannesson, yfirlæknir.
Barði Ingibjartsson