Íþróttahús
Íþróttahúsið á Torfnesi, Ísafirði
Simi: 450 8485 - Fax: 456 5508
Póstfang: ithrottahus@isafjordur.is
Íþróttahúsið á Torfnesi er eina fullstóra íþróttahúsið í Ísafjarðarbæ, en þar hefur 40 x 20 metra völl og áhorfendaaðstöðu fyrir 900 manns. Húsið var tekið í notkun 16. september 1993.
Íþróttahúsið við Austurveg, Ísafirði
Simi: 450 8480
Póstfang: ithrottamidstod@isafjordur.is
Við Austurveg er lítið íþrottahús sem er sambyggt sundlauginni. Þar er merktur 10 x 20 metra salur.
Íþróttahúsið á Flateyri
Sími: 450 8460 - Fax: 456 7656
Póstfang: itrflat@isafjordur.is
Á Flateyri var byggt upp íþróttahúsið á sama tíma og sundlaugin sem opnaði 1984, en íþróttahúsið var þó ekki fullklárað að innan fyrr en árið 1997. Húsið hefur 28 x 16 metra völl sem er löglegur völlur fyrir körfubolta, blak og badminton. Bað- og búningsklefar samnýtast sundlaug.
Sími: 450 8470
Póstfang: sundth@snerpa.is
Íþróttahúsið á Þingeyri
Á Þingeyri var glæsilegt íþróttahús tekið í notkun í desember 1997, það er með 30 x 30 metra völl og útdregnum áhorfendasætum. Bað- og búningsklefar samnýtast sundlaug.
Íþróttahúsið á Þingeyri
Íþróttahúsið á Suðureyri
Sími 450 8490
Póstfang: sundsud@isafjordur.is
Á Suðureyri var nýtt iþróttahús tekið í notkun í september 2006, en húsið er því nýjasta íþróttahúsið í sveitarfélaginu. Það er sambyggt sundlaug og grunnskóla.
