Stjórnkerfi Ísafjarðarbæjar
Stjórnkerfi Ísafjarðarbæjar skiptist eins og önnur opinber stjórnkerfi á Íslandi annars vegar í pólitískt kerfi og hins vegar í embættismannakerfi. Pólitíska kerfið samanstendur af lýðræðislega kjörnum bæjarfulltrúum sem skipa bæjarstjórn og nefndir sem bæjarstjórn skipar samkvæmt bæjarmálasamþykkt.
Í embættismannakerfinu eru ráðnir stjórnendur bæjarfélagsins með bæjarstjóra sem æðsta yfirmann og framkvæmdastjóra bæjarins. Í Ísafjarðarbæ skiptist embættismannakerfið í fimm svið; stjórnsýslusvið, fjármálasvið, umhverfis- og eignasvið, skóla- og tómstundasvið og félagsmálasvið. Á hverju sviði eru deildir og undir deildunum eru stofnanir.
