Íþrótta- og tómstundanefnd
52. fundur.
Miðvikudaginn 16. nóvember 2005 kl. 16:00 kom íþrótta- og
tómstundanefnd Ísafjarðarbæjar saman í fundarsal bæjarstjórnar í
Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.
Á fundinum voru: Bryndís Birgisdóttir, formaður, Jón Hálfdán Pétursson, Jóna
Benediktsdóttir, Jón Björnsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Gunnar Þórðarson
frkvstj. HSV og Ingibjörg María Guðmundsdóttir, forstöðumaður Skóla- og
fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar. Sturla Páll Sturluson og Guðríður
Sigurðardóttir boðuðu forföll, varamenn komust ekki í þeirra stað.
Ingibjörg María Guðmundsdóttir ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
Jón Björnsson gerði grein fyrir stöðu við gerð fjárhagsáætlunar, helstu breytingartillögum og lagði fram greinargerð með fjárhagsáætlun 2006 fyrir íþrótta- og tómstundamál, sem sent er inn til fjármálastjóra.
Lagt fram til kynningar.
Gunnar Þórðarson kynnti nefndinni erindi frá formannafundi um Framtíðarnefnd HSV og stefnuna sem mörkuð hefur verið til að efla störf íþróttafélaganna og til að efla virkt eftirlit með faglegum störfum íþróttafélaganna.
Kynnt staða samnings um rekstur vallasvæðis á Torfnesi, sem gerður var við Boltafélag Íafjarðar og rennur út um áramót.
Íþrótta- og tómstundanefnd felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að koma með tillögu að framtíðarrekstri vallasvæðis á Torfnesi.
Kynnt afgreiðsla bæjarráðs um að Félagsmiðstöðin á Ísafirði leigi húsnæði í eigu Sjálfstæðisflokksins til starfseminnar. Starfsmenn eru að flytja búnað og koma fyrir tækjum í nýju húsnæði.
Lagt fram til kynningar.
Kynnt afgreiðsla bæjarráðs vegna beiðni um aukafjárveitingu til að loka rekstri ársins.
Lagt fram til kynningar.
Farið yfir stöðu framkvæmda við Íþróttahúsið á Suðureyri og hugsanlega þátttöku félagasamtaka við tækjakaup og aðra innanstokksmuni. Formaður kynnti þá ákvörðun að íþróttahúsið verði væntanlega afhent með viðhöfn þann 26. nóvember n.k. kl. 14:00.
2005-11-0042
Lagt fram bréf frá félaginu dags. 30. sept. 2005 ásamt tímariti félagsins.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram bréf dags. 10. júní 2005, frá ÍSÍ þar sem óskað er upplýsinga um þá aðila sem sinna málefnum eldri borgara.
Íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að svara erindinu.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi leggur til að ráðinn verði vaktstjóri í íþróttahúsið tímabundið á meðan verið er að skoða verklýsingu stjórnenda íþróttahúsa.
Íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að vinna áfram að málinu í samvinnu og samráði við starfsmannastjóra.
Jóna Benediktsdóttir upplýsti um að verið væri að koma á laggirnar starfshópi fyrir verkefnið ,,Allt hefur áhrif".
Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17:55
Bryndís Birgisdóttir, formaður.
Jón Hálfdán Pétursson. Jóna Benediktsdóttir. Gunnar Þórðarson.
Jón Björnsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi.
Ingibjörg María Guðmundsdóttir, forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu.