Íþrótta- og tómstundanefnd
51. fundur.
Miðvikudaginn 12. október 2005 kl. 16:00 kom íþrótta- og
tómstundanefnd saman í fundarsal bæjarstjórnar. Á fundinum voru: Bryndís
Birgisdóttir, formaður, Sturla Páll Sturluson, Guðríður Sigurðardóttir, Jón
Hálfdán Pétursson, Jóna Benediktsdóttir, Jón Björnsson, íþrótta- og
tómstundafulltrúi og Ingibjörg María Guðmundsdóttir, forstöðumaður Skóla- og
fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar.
Ingibjörg María Guðmundsdóttir ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
Jóhann Torfason, forstöðumaður Skíðasvæðis, mætti til fundar við nefndina undir þessum lið til að ræða um rekstrarstöðu skíðasvæðis.
Íþrótta- og tómstundanefnd felur forstöðumanni Skíðasvæðis og
íþrótta- og tómstundafulltrúa, að gera viðeigandi ráðstafanir vegna
rekstrarstöðu svæðisins.
Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til við bæjarstjórn að skipaður verði 5 manna
starfshópur til að endurskipuleggja þjónustustig og setja upp framtíðarsýn fyrir
skíðasvæðið og í hópnum sitji notendur svæðisins og fulltrúar rekstraraðila.
Jafnframt er forstöðumanni falið að taka saman greinargerð, um framkvæmdir
svæðisisns, sundurliðaða eftir verkefnum, fjármögnun og framkvæmdartíma svo ljóst
verði hver hefur greitt hvaða framkvæmdir og hvenær.
Lögð fram áætlun um ferli við gerð fjárhagsáætlun ársins 2006.
Lagt fram til kynningar.
Rætt um starfsmannamál íþróttahúsanna og hugsanlegar starfslýsingar.
Íþrótta- og tómstundanefnd felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Farið yfir stöðu framkvæmda við Íþróttahúsið á Suðureyri.
Rætt um húsnæðismál Félagsmiðstöðvar og leiðir til úrbóta.
Gunnar Þórðarson upplýsti að ekki hafi borist umsóknir til HSV um tíma í íþróttahúsum á Suðureyri, Þingeyri og Flateyri.
Lagt fram bréf frá Menntamálaráðuneytinu dags. 4. okt. s.l., þar sem Ísafjarðarbæ er veittur styrkur að upphæð 500.000 kr til undirbúningsvinnu við Evróvísi. Greinargerð um notkun styrkfjárins óskast send ráðuneytinu fyrir 1. janúar n.k.
Lagt fram til kynningar.
Jóna Benediktsdóttir spyr um stöðu verkefnisins ,,Allt hefur áhrif".
Íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að afla upplýsinga.
Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:00.
Bryndís Birgisdóttir, formaður.
Sturla Páll Sturluson. Jóna Benediktsdóttir.
Guðríður Sigurðardóttir. Jón Hálfdán Pétursson.
Ingibjörg María Guðmundsdóttir. Jón Björnsson.