Barnaverndarnefnd
60. fundur
Árið 2005, fimmtudaginn 15. september kl. 9.30, hélt
barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum fund á Skóla- og fjölskylduskrifstofu
Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu.
Mætt voru: Laufey Jónsdóttir, formaður, Björn Jóhannesson, Védís Geirsdóttir,
Helga Sigurjónsdóttir og Kristrún Hermannsdóttir. Auk þess sat fundinn Anna V.
Einarsdóttir, starfsmaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar.
Fundarritari: Anna V. Einarsdóttir.
1. Trúnaðarmál
Trúnaðarmál rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók barnaverndarnefndar.
2. Skilgreiningar og flokkun í barnaverndarmálum 2005-08-0021.
Dr. Freydís J Freysteinsdóttir hefur útbúið fyrir Barnaverndarstofu skilgreiningar- og flokkunarkerfi í barnaverndarmálum, SOF kerfið. Barnaverndarstofa hefur ákveðið að taka SOF kerfið í notkun og hefur sent eintök af SOF kerfinu til starfsmanna barnaverndarnefnda.
Lagt fram til kynningar
3. Skýrsla yfir stöðu barnaverndarmála 2004-12-0033.
Skýrsla Barnaverndarstofu þar sem fram kemur staða barnaverndarmála á fyrstu sex mánuðum ársins 2005.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 10:30.
Laufey Jónsdóttir, formaður.
Björn Jóhannesson. Védís Geirsdóttir.
Kristrún Hermannsdóttir. Helga Sigurjónsdóttir.
Anna Valgerður Einarsdóttir