Nanortalik
Nanortalik er vinabær Ísafjarðarbæjar á Grænlandi. Nanortalik er á suður Grænlandi. Að flatarmáli er sveitarfélagið mjög stórt, eða um 15.000 km2, en íbúar eru um 1.500. Landslagið er þar fjölbreytt og eini upprunalegi skógur landsins er í sveitarfélaginu. Á byggðasafni Nanortalik má sjá minjar um þá norrænu menn sem einu sinni bjuggu á þessu svæði.
Nanortalik kommune
Nanortalik
Grönland
