Almennt um tillögurnar
Innsendar tillögur eru allar vandaðar og skýrar í framsetningu.
Tillögurnar má greina út frá megindráttum forms og fyrirkomulags í þrjá flokka. Þar af eru tvær tillögur (#64824 og #16391) sem unnar eru út frá strangri geómetríu þar sem ákveðin reglufesta er lögð til grundvallar byggingarinnar, þrjár (#00001, #12007 og #82011) sem einkennast af lífrænni dráttum með margvíslegum uppbrotum byggingarhluta, og ein tillaga (#83361) þar sem agað yfirbragð og viss fjölbreytni byggingarhluta eru leidd saman.
Framsetning lóðar er annars vegar innhverf, þ.e. garðar sem snúa inn að byggingunni (#12007, #16391 og #64824) og úthverf, þ.e. garðar sem snúa út á við að firðinum og öðru umhverfi (#00001, #82011 og #83361).
Aðkoma er ýmist gefin frá enda byggingarinnar næst Hafnarstræti (#00001, #12007 og #82011) eða næst miðju byggingarinnar sunnan við spítalann (#16391, #64824 og 83361), sem ræður miklu um ferli innandyra, þar með talið lengd ganga.
Þrátt fyrir að byggingin sé ekki nema ein hæð eru í sameiginlegu rými margra tillagnanna áberandi þakgluggar í stað hefðbundinna glugga á veggjum (#00001, #64824, #82011) og í öðrum miklir, glerjaðir útveggir sem draga nokkuð úr heimilislegu andrúmi (#12007, 16391).
Íbúðarherbergi eru nokkuð misgóð, sum nánast eins og sjúkrastofur (#16391) en önnur vistlegri með inndregnum aðkomudyrum, lítilli verönd og setkrók (#00001, #12007, #64824, 82011 og #83361).
Efnisval bygginga er í öllum tilfellum að grunni til steinsteypa og flestar eru múrhúðaðar í ljósum lit með ýmis tilbrigði svo sem málmklæðningu, gróðri vaxin vírnet eða tréklæðningu á hluta byggingar. Flest eru einnig að stórum hluta með torf eða lyng á flötum þökum, en sum skera sig úr með staka byggingarhluta með hallandi þaki.
