Skólaakstur
Grunnskólinn á Ísafirði
Innan Skutulsfjarðar þ.e. milli skóla og Holtahverfis eða Hnífsdals gengur almenningsvagn (F&S Hópferðabilar ehf.) sem skólabörn nýta sér til og frá skóla.
Foreldri sinnir skólaakstri milli Engidals og Ísafjarðar vegna sérstakra aðstæðna þar.
Nemendum sem búsettir eru í dreifbýli Önundarfjarðar er ekið til Ísafjarðar í skóla og er boðið upp á 13 ferðir á viku, morgunferðir alla virka daga kl. 07:20 í skóla og heimferðir að loknum skóladegi.
Grunnskóli Önundarfjarðar
Skólaakstur er frá Ingjaldssandi til Flateyrar og sinnir foreldri honum.
Grunnskólinn á Þingeyri
Ekinn er hringurinn um fjörðinn í skólann og heim aftur í lok dags. Í kringum 20 nemendur eru úr dreifbýli Dýrafjarðar.
F&S Hópferðabílar (Friðfinnur og Sirrý) sinna skólaakstri að undanskilinni leiðinni milli Hóla og Þingeyrar sem foreldrar sinna. Síminn hjá bílstjóra F&S er 893 1058 / 853 1058.
| Frá Núpi | kl. |
| mánudaga-föstudaga | 07:15 |
| Frá Þingeyri | kl. |
| mánudaga | 13:30 & 15:00 |
| þriðjudaga | 13:30 & 15:00 |
| miðvikudaga | 15:00 |
| fimmtudaga | 13:00 & 15:30 |
| föstudaga | 12:45 |
Grunnskólinn á Suðureyri
Nemendum við Grunnskólann á Suðureyri sem búa í dreifbýlinu er ekið af foreldrum. Annars vegar er akstur frá Botni og hins vegar frá Stað.
