Flýtileiðir

Skólaþjónusta Ísafjarðarbæjar

Hlutverk skólaþjónustunnar er rekstrarlegt og faglegt eftirlit með starfsemi skóla Ísafjarðarbæjar. Í því felst m.a. að veita grunnskólum og leikskólum sérfræðiaðstoð og ráðgjöf. Skólaþjónustan veitir eftirfarandi sérfræðiþjónustu: Einstaklingsþjónusta - greining og úrræði. T.d. sálfræðileg og kennslufræðileg greining námsvandamála og greining samskipta og hegðunarvandamála.

Starfsmenn Skólaþjónustunnar

Viðtalstími er á opnunartíma skrifstofu nema annað sé tekið fram.
Simi 450 8000 - Fax: 456 3508

Ráðgjöf til foreldra og nemenda

Foreldrar geta leitað til ráðgjafa skóladeildar með vandamál tengd skólagöngu barns sem upp koma, hvort sem um er að ræða námsárangur, hegðun, eða líðan í skólanum. 

Stjórnskipulag skólamála

Fræðslunefnd er skipuð 5 fulltrúum sem eru pólitískt kjörnir af bæjarstjórn. Fulltrúar kennara, skólastjóra og foreldra í Ísafjarðarbæ eiga rétt til setu á fundum fræðslunefndar með málfrelsi og tillögurétt. Hlutverk nefndarinnar er að marka stefnu sveitarfélagsins í skólamálum, fylgjast með og stuðla að því að skólum sé tryggður aðgangur að sérfræðiþjónustu, aðbúnaður sé fullnægjandi og að unnið sé skv. lögum.

Vefumsjón