Leikskólar í Ísafjarðarbæ
Ísafjarðarbær rekur 5 leikskóla fyrir börn á aldrinum 1-6 ára. Tveir stærstu leikskólarnir eru á Ísafirði. Það eru Sólborg sem er með fjórar deildir og Eyrarskjól með þrjár deildir. Báðir skólar aldursskipta börnum á deildir.
Þar utan eru þrír leikskólar í sveitarfélaginu; Tjarnarbær á Suðureyri, Grænigarður á Flateyri og Laufás á Þingeyri. Fjölbreytni er í starfi leikskólanna og fer áhersla á hverjum stað eftir mannauð og samfélagslegum áherslum.
Leikskólar Ísafjarðarbæjar starfa samkvæmt aðalnámskrá leikskóla en hver þeirra er með sínar áherslur á ákveðna þætti og í vetrarstarfinu er lögð áhersla á ákveðin þemu. Einnig er boðið uppá ýmsar ferðir, skemmtanir og menningarviðburði í öllum leikskólum bæjarfélagsins.
Leikskólar eru opnir frá kl. 7:30 eða 7:45 og til 15:15, 16:15 eða 17:15 eftir þörf á hverjum stað. Að lágmarki þarf fjögur börn til að halda skóla/deild opinni. Laufás á Þingeyri er eini einsetni leikskólinn í sveitarfélaginu. Allir leikskólar bjóða upp á morgunmat, heitan mat í hádeginu og síðdegishressingu.
Hver leikskóli er með eigin vefsíðu.
