Gisting
Ísafjörður
Gamla gistihúsið
Tveggja stjarna, reyklaust gistiheimili á tveimur hæðum í miðbæ Ísafjarðar. Gistirými er fyrir 19 manns í átta tveggja manna herbergjum og einu þriggja manna herbergi. Vaskur, sjónvarp og tölvutenging í hverju herbergi. Sameiginleg bað- og snyrtiaðstaða á hvorri hæð. Hægt er að fá barnarúm og dýnur fyrir yngstu gestina. Notaleg setustofa. Góð hljóðeinangrun er í húsinu. Morgunverður framreiddur í borðsal. Einnig er í boði svefnpokagisting með eldunaraðstöðu.
Vefsíða: http://www.gistihus.is/
Netfang: gistihus@gistihus.is
Sími: 456-4146, 897-4146, fax: 456-4446
Mánagötu 5, 400 Ísafjörður
Opið allt árið.
Hótel Ísafjörður
Þriggja stjarna heilsárshótel í hjarta bæjarins. Reyklaust hótel með 36 herbergjum með sturtu, sjónvarpi, síma og hárþurrku. Góð aðstaða til að taka á móti smærri og stærri hópum og hentar því vel fyrir fundi og ráðstefnur. Á jarðhæð er veitingastaðurinn Við Pollinn. Ýmis sértilboð árið um kring, sjá nánar á vef hótelsins.
Vefsíða: http://www.hotelisafjordur.is/
Netfang: info@hotelisafjordur.is
Sími: 456-4111
Fax: 456-4767
Silfurtorgi 2, 400 Ísafjörður
Opið allt árið.
Hótel Edda
Tveggja stjörnu hótel er rekið á sumrin í Menntaskólanum á Torfnesi á vegum Hótels Ísafjarðar. Fjarlægð frá miðbæ Ísafjarðar og Hótel Ísafirði um 1 km. 40 gistiherbergi, þar af 10 nýuppgerð tveggja manna herbergi með baði. Öll herbergi reyklaus. Einnig boðið upp á svefnpokagistingu í rúmum í herbergjum eða í skólastofum. Tjaldsvæði með snyrtiaðstöðu í skólanum. Hægt að nýta setustofu hótelsins og kaupa morgunverð. Staðsetning miðsvæðis og hentar vel einstaklingum og minni hópum. Gestamóttakan opin allan sólarhringinn. Ýmis spennandi tilboð á vef hótelsins.
Vefsíða: http://www.hoteledda.is
Netfang: edda@hoteledda.is
Sími: 444-4960
Menntaskólinn, Torfnesi, 400 Ísafjörður
Opið frá byrjun júní til 20. ágúst.
Litla gistihúsið
Uppbúin tveggja og eins manns herbergi með sjónvarpi. Herbergi með sér wc og aðgangi að sturtu og eldhúsi, en einnig herbergi með sameiginlegu baði og eldhúsaðstöðu.
Vefsíða: guesthouselitla.is
Netfang: guesthouselitla@gmail.com
Sími: 893-6993
Sundstræti 43, 400 Ísafjörður
Opið allt árið.
Gisting Áslaugar - Faktorshúsið í Hæstakaupstað
Vel búið hús í gömlum stíl en með nútíma þægindum. Litil íbúð (svíta/herbergi með baði) á efri hæð í Faktorshúsi í Hæstakaupstað, byggt 1788. Herbergi með baði eða „brúðarsvíta“, eftir því sem hentar hverju sinni. Rými fyrir 2-5 manns: tvær tvíbreiðar lokrekkjur auk bekks sem barn getur sofið á. Leiðsögn um húsið með söguskýringum ef óskað er. Veitingastofur á neðri hæð og salur á efri hæð henta vel fyrir litla hópa. Þráðlaust netsamband. Aðstaða fyrir fundi og veislur.
Vefsíða: http://www.evesta.is/Vacation-Rentals/33785.aspx ; http://www.flickr.com/photos/77372516@N00/
Netfang: gistias@snerpa.is
Sími: 899-0742, fax: 456-4075
Hæstakaupstað, 400 Ísafjörður
Opið allt árið.
GentleSpace gistiíbúðir – Mjallargata, Fjarðarstræti og Túngata
GentleSpace er fjölskyldufyrirtæki sem rekur þrjár gistiíbúðir í hjarta Ísafjarðarkaupstaðar með öll tilskilin leyfi. Þessar íbúðir eru smekklega og hlýlega innréttaðar með helstu nútíma þægindum.
Allar íbúðirnar eru með svalir eða sólpall, nýtt og fullbúið eldhús, uppbúin rúm, handklæði, sjónvarp, DVD, útvarp/CD, þvottavél og frítt Wi-Fi. Lokaþrif eru innifalin.
Gistiíbúðir eru skemmtilegur valkostur við gistingu á Ísafirði, þar sem einstaklingar, fjölskyldur, pör og smá hópar geta gist á mjög hagkvæman og þægilegan máta.
Vefsíða: www.gentlespace.is
Netfang: info@gentlespace.is
Sími: 892-9282 / 867-6657
Mjallargata 1, Fjarðarstræti 6 og Túngata 20
Opið allt árið.
Gamla apótekið
Tæplega 100m2 íbúð í nýuppgerðu húsi í hjarta Ísafjarðar. Uppbúin rúm, gistipláss fyrir allt að 5 fullorðna og 3 börn í þremur svefnherbergjum. Öll nauðsynleg tæki og áhöld eru til staðar. Göngufæri í alla helstu þjónustu, svo sem matvöruverslun, banka, pósthús, apótek, kaffihús og veitingastaði.
659-7897
Hafnarstræti 18, 400 Ísafjörður
Silfurgata 12
Notaleg gisting i gömlu nýuppgerðu húsi i hjarta Ísafjarðarbæar. Gisting fýrir 2-4 manns, stórt ameriskt rúm og svefnloft. Uppbúin rúm. Mjög stutt i alla þjónustu, svo sem veitingastaði, kaffihús, matvöruverslun, pósthús, banka o.s.frv. Öll nauðsynleg tæki og áhöld til staðar.
862-5669, 863-5669
Silfurgata 12, 400 Ísafjörður
Flateyri & Önundarfjörður
Ferðaþjónustan Grænhöfði
Fullbúið orlofshús á Flateyri, dags- eða vikuleiga. Sundlaug staðarins í 100 m fjarlægð. Hægt að fá leigða báta hjá Kajakaleigu Grænhöfða, með eða án leiðsagnar.
Vefsíða: http://www.sjavarutvegur.is/sport/graenhofdi.htm
Netfang: jens@snerpa.is
Sími: 456-7762, 863-7662
Ólafstúni , 425 Flateyri
Opið allt árið.
Brynjukot
Aldamótahús, uppbúin rúm eða svefnpokapláss, eldunaraðstaða, þvottavél. Sólarhrings- eða vikuleiga.
Netfang: jens@snerpa.is
Sími: 456-7762, 861-8976
Ránargötu, 425 Flateyri
Opið allt árið.
Korpudalur
Gamalt býli sem breytt hefur verið í farfuglaheimili, innst í Önundarfirði, 17 kílómetra frá Ísafirði og 12 kílómetra frá Flateyri. Uppbúin rúm og svefnpokagisting, tjaldsvæði, morgunmatur, eldunaraðstaða, þráðlaust netsamband. Þvottavél og þurrkari. Gestir sóttir á næsta komustað, t.d. Ísafjörð, ef óskað er. Góðar gönguleiðir í nágrenninu og mikið fuglalíf.
Vefsíða: www.korpudalur.is
Netfang: korpudalur@centrum.is
Sími: 456-7808, 892-2030
Korpudalur, Önundarfjörður
425 Flateyri
Opið 1. júní - 31. ágúst.
Holt
Friðarsetur, kirkju-, félags- og menningarmiðstöð. Gisting í íbúð og herbergjum, uppbúið og svefnpokapláss og eldunaraðstaða. Aðstaða fyrir fundi og ráðstefnur og hentar vel m.a. fyrir ættarmót
Vefsíða: http://www.holt.it.is
Netfang: holt@snerpa.is
Sími: 456-7611, 456-7783
Holt, 425 Flateyri
Opið allt árið.
Þingeyri & Dýrafjörður
Gistihúsið Alviðru
Við leigjum út íbúðir í vikuleigu.
Staðsetning: Dýrafjörður 471,Þingeyri
Sími:895-0080 / 895-7179
Netfang:alvidra@snerpa.is
Núpur í Dýrafirði
Hótel Núpur er stærsta Hótel á Vestfjörðum með gistiaðstöðu fyrir u.þ.b. 120 manns. Einnig stórt tjaldsvæði. Í júní 2008 er m.a. fyrirhugað að bjóða uppá „Kærleiksdaga“, þar sem áhersla er lögð á svæða- og heilnud og heilun. Kökuhlaðborð alla sunnudaga kl. 15-17. Einnig er stefnt að því að bjóða uppá veiðiferðir (gæs, rjúpu og lax), berjatínslu, lengri sem skemmri gönguskíðaferðir o.fl.
Vefsíða: http://www.hotelnupur.is
Netfang: info@hotelnupur.is
Sími: 4568235 og 8649737
Núpi, 471 Þingeyri,
Opnunartími 1. júní – 1. september. Eftir samkomulagi á öðrum árstímum.
Gistiheimilið Vera
Stúdíóíbúð, uppbúin rúm og svefnpokagisting, eldunaraðstaða.
Netfang: skuli@snerpa.is
Sími: 456-8232, 891-6832
Hlíðargötu 22, 470 Þingeyri
Opið allt árið.
Gistihúsið Við fjörðinn
Vel staðsett gistiheimili. Góð aðstaða er fyrir hópa og einstaklinga í herbergjum eða íbúðum. Uppbúin rúm eða svefnpokapláss. Tvö herbergi eru með baði. Eldunaraðstaða. Morgunverður er framreiddur í garðskála. Aðstaða fyrir hreyfihamlaða.
Vefsíða: http://www.vidfjordinn.is
Netfang: vidfjordinn@vidfjordinn.is
Sími: 456-8172, 847-0285
Aðalstræti 26, 470 Þingeyri
Opið allt árið.
Sandafell Þingeyri
Gistiheimili með 8 herbergjum. Veitingasalur opinn alla daga í sumar milli klukkan 10 og 22. Boðið upp á matarmiklar súpur, samlokur og kaffiveitingar.
Netfang: hotelsandafell@simnet.is
Sími: 456-1600
Hafnarstræti 7, 470 Þingeyri
Gistiheimilið Fjarðargötu 10
Uppábúin rúm. Eldunaraðstaða.
hoi@simnet.is
896-3750
Fjarðargata 10, 470 Þingeyri.
Opið allt árið
Suðureyri & Súgandafjörður
Galtarviti
Hægt að fá Galtarvita leigðan í skemmri eða lengri tíma og er bæði verð og tímasetning samningsatriði. Galtarviti stendur í Keflavík sem er vík út af Súgandafirði og aðeins hægt að komast þangað gangandi, á snjósleða eða sjóleiðina þegar veður leyfir.
Vefsíða: http://www.galtarviti.com
Netfang: gukon@centrum.is
Keflavík út af Súgandafirði, 430 Suðureyri
Fisherman Hótel Suðreyri
Þriggja stjörnu gisting á nýlegu, fjölskylduvænu hóteli í vestfirsku sjávarþorpi. Uppbúin rúm, veitingahús, eldunaraðstaða. Opið allt árið.
Vefsíða: http://www.fisherman.is
Netfang: fisherman@fisherman.is
Sími: 450-9000
Aðalgötu 14, 430 Suðureyri
Opið allt árið.
66 Guesthouse
34 uppábúin rúm í nýju gistiheimili á Suðureyri. Borðsalur, morgunverður, góð sturtuaðstaða, sjónvarp og þráðlaust Internet.
Vefsíða: http://www.66guesthouse.is
Netfang: gisting@66guesthouse.is
Sími: 456-5566
Túngötu 2, 430 Suðureyri
Hornstrandir, Jökulfirðir og Snæfjallaströnd
Ferðaþjónustan Mávaberg, Bolungavík
Bolungavík á Hornströndum. Svefnpokagisting, eldunaraðstaða og tjaldsvæði. Þvottavél, aðgangur að síma, veitingar eftir samkomulagi. Boðið upp á fólks- og farangursflutninga með bátnum Sædísi - frá Norðurfirði, Bolungavík og Ísafirði - eftir samkomulagi.
Vefsíða: http://www.freydis.is/
Netfang: mavaberg@freydis.is
Sími: 456-7192, 852-8267, 893-6926
Bolungavík á Hornströndum, 401 Ísafjörður
Opið á sumartíma.
Hornbjargsviti
Svefnpokagisting í kojum eða rúmum, aðgangur að eldhúsi með öllum búnaði, sturta, salerni. Tjaldsvæði með aðgangi að vatnssalernum. Reglulegar bátaferðir úr Norðurfirði á Ströndum með Freydísi ehf.
Vefsíða: http://www.ovissuferdir.net
Netfang: ovissuverdir@ovissuferdir.net
Sími: 852-5219, 892-5219, 566-6752
Látravík, Hornströndum, 401 Ísafjörður
Opið á sumartíma.
Ferðaþjónustan Reykjarfjörður
Svefnpokapláss í gömlu, nýuppgerðu húsi með pláss fyrir 22 gesti. Einnig tvö lítil sumarhús með eldunaraðstöðu sem rúma 4-5 í kojum hvort. Tjaldsvæði, vatnsklósett og rennandi vatn, grill og borð og bekkir. Sundlaug og flugvöllur.
Netfang: reykjarf@mi.is
Sími: 456-7215, 853-1615
Reykjarfjörður nyrðri, 401 Ísafjörður
Opið á sumartíma.
Ferðaþjónustan Grunnavík
Svefnpokagisting, tjaldsvæði, eldunaraðstaða, sturtur. Trússbátur, leiðsögn um Grunnavík. Áætlunarferðir frá Bolungarvík í Grunnavík með bátnum Ramónu.
Vefsíða: http://www.grunnavik.it.is
Netfang: grunnavik@snerpa.is
Sími: 456-4664, 848-0511, 852-4819
Grunnavík, 401 Ísafjörður
Opið á sumartíma.
Læknishúsið á Hesteyri
Kaffiveitingar, svefnpokagisting og eldunaraðstaða. Áætlunarferðir frá Ísafirði, seldar hjá Vesturferðum, s. 456-5111.
Hesteyri er mjög friðsæll og fallegur staður. Þaðan liggja gönguleiðir til allra átta, góð aðstaða fyrir kajaka og sjóskíði.
Netfang: sossa@bolungarvik.is
Sími: 456-7183
Hesteyri, Jökulfjörðum
401 Ísafjörður
Opið á sumartíma.
Ferðaþjónustan Dalbær, Snæfjallaströnd
Ferðaþjónustan Dalbær býður upp á svefnpokagistingu, tjaldsvæði og léttar veitingar. Boðið er upp á morgun- og hádegisverð, kaffi og meðlæti. Einnig er hægt að fá kvöldverð ef pantað er fyrirfram.
Dalbær stendur í fallegu umhverfi og býður upp á fjölbreytta möguleika til styttri og lengri gönguferða.
Sími: 898-9300
Tölvupóstur: thruman@simnet.is / slaugaj@hotmail.com
Dalbæ, Snæfjallaströnd, 401 Ísafjörður
Opnun 2008: 12. júní - 24 ágúst.
