Alþjóðlegt brúðusafn
Félags- og menningarmiðstöðin, Hafnarstræti 11, Flateyri.
Sími: 456 7710.
Í Félags- og menningarmiðstöðinni á Flateyri er alþjóðlegt brúðusafn þar sem sjá má á annað hundrað handgerðar brúður frá ýmsum hornum heims. Safnið gáfu þýsku hjónin d. Siller og dr. Pintsch Minjasjóði Önundarfjarðar árið 1999.
Félagar í handverksfélaginu Purku hafa umsjón með brúðusafninu og eru þar einnig með verslun.
Opið er alla daga á sumrin. Yfir vetrartímann er opið á þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum frá kl 14:00-17:00.
