Bæjarstjóri
Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarfélagsins og hefur með höndum málefni bæjarfélagsins og framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar. Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsmanna bæjarfélagsins. Hann á sæti á fundum bæjarstjórnar og bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn eða bæjarráði. Hann hefur einnig rétt til setu á fundum nefnda bæjarfélagsins með sömu réttindum. Í forföllum er bæjarritari staðgengill bæjarstjóra.
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar er Daníel Jakobsson.
Bæjarstjóri hefur aðsetur á 2. hæð í Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1, Ísafirði.
Sími : 450 8000 - Fax 450 8008
Póstfang: danielj@isafjordur.is
Viðtalstímar eru milli klukkan 11 og 12 á föstudögum, eða eftir samkomulagi.
Sendu bæjarstjóra póst:
