Flýtileiðir

Guðfinna M. Hreiðarsdóttir

Guðfinna M. Hreiðarsdóttirer fædd 3. apríl 1966 í Reykjavík. Foreldrar hennar eru Hreiðar Eyjólfsson bílstjóri og Elsa Einarsdóttir húsmóðir, búsett í Reykjavík.

 

Guðfinna lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1986, BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands 1991 og MA-próf í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands 2009.

 

Á undanförnum árum hefur hún verið sjálfstætt starfandi við ýmiss konar ritstörf og ritstjórn, einkum um sagnfræðileg efni. Hún hefur  einnig unnið og sett upp sýningar þar sem viðfangsefnið er fortíðin og sagan frá mismunandi sjónarhornum.

 

Guðfinna hefur átt sæti í ýmsum nefndum og stjórnum, m.a. er hún formaður stjórnar Sögufélags Ísfirðinga auk þess sem hún á sæti í Hrafnseyrarnefnd og göngunefnd Skíðafélags Ísfirðinga.

 

Guðfinna er gift Halldóri Halldórssyni og eiga þau þrjú börn. Þau hafa verið búsett á Ísafirði frá árinu 1996. 

 

Tölvupóstfang:gudfinnah@isafjordur.is

Vefumsjón