Flýtileiðir

Albertína F. Elíasdóttir

Albertína Friðbjörg er fædd á Ísafirði 17.febrúar 1980. Foreldrar hennar eru Ingibjörg Svavarsdóttir og Elías Oddsson.  Hún á tvö systkini, Þórunni Önnu og Odd. 

Albertína Friðbjörg varð stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 2000, lauk BA-prófi í félagsfræði árið 2005 og er að ljúka meistaranámi í landfræði frá Háskóla Íslands. 

Albertína starfar sem verkefnastjóri hjá Háskólasetri Vestfjarða, auk þess að kenna í frumgreinanámi á sama stað. Albertína hefur einnig lagt stund á píanónám við Tónlistarskóla Ísafjarðar frá 6 ára aldri, en hefur nú lokið 8. stigi og því hætt tónlistarnámi í bili. 

Helstu áhugamál Albertínu eru félagsstörf, útivist og ljósmyndun. 

Netfang: albertinae@isafjordur.is

Vefumsjón