Skipulags- og mannvirkjanefnd
Dagskrá
1.Sæmundur Kr. Þorvaldsson óskar eftir að hitta skipulags- og mannvirkjanefnd - 2016050069
Sæmundur Kr. Þorvaldsson óskar eftir að hitta skipulags- og mannvirkjanefnd til þess að ræða regluverk sem lýtur að skógrækt á einkalöndum.
Skipulags- og mannvirkjanefnd hlustaði á erindi Sæmundar Kr. Þorvaldssonar, varðandi regluverk sem lýtur að skógrækt á einkalöndum, tilkynningarskyldu, leyfisumsóknum og umsóknum annarra aðila. Nefndin þakkar Sæmundi upplýsingarnar og fræðandi erindi.
Gestir
- Sæmundur Kr. Þorvaldsson - mæting: 08:00
2.Stekkjargata 21 - beiðni um umsögn - 2016020075
Starfsleyfi fyrir bílapartasölu að Stekkjargötu 21, Hnífsdal. Fundað með Anton Helgasyni frá Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða.
Formanni nefndarinnar og skipulags- og byggingarfulltrúa var falið að orða umsögn varðandi starfsleyfi, út frá umræðu á fundinum. Nefndin þakkar Anton fyrir veittar upplýsingar.
Gestir
- Anton Helgason - mæting: 08:30
3.Alpagróður til Þingeyrar - 2016050041
Skjólskógar sækja um leyfi til gróðursetninga á trjám í Dýrafirði.
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir erindi Skjólskóga varðandi gróðursetningu trjáa í Dýrafirði. Nánari staðsetning skal unnin í samráði við umhverfisfulltrúa Ísafjarðarbæjar.
4.Silfurgata 8b - Umsókn um lóð - 2016050022
Bjarni M Aðalsteinsson sækir um afnot af eða að leigja lóðina silfurgötu 8b.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
5.Skógur ehf. umsókn um stöðuleyfi fyrir torgsöluhús - 2016050011
Skógur ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir torgsöluhús á hafnarsvæði.
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir torgsöluhúsinu, enda verði húsið staðsett í samráði við hafnarstjóra, tæknideild og viðkomandi lóðarhafa.
6.Gunnar G Magnússon sækir um framkvæmdaleyfi fyrir gerð garðs að manngerðum hólma - 2016050065
Gunnar G Magnússon sækir um framkvæmdaleyfi fyrir gerð garðs að manngerðum hólma ca. 70-80 metrar að lengd. Í fjörunni neðan við bæinn Ytri Veðrará.
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir erindið. Um er að ræða manngerðan hólma og er framkvæmdin endurnýjun á garði sem fyrir er.
7.Dagverðardalur 2 fyrirspurn um stækkun. - 2016050066
Ásgeir Erling Gunnarsson spyr hvort heimilt sé að stækka sumarbústað við Dagverðardal nr. 2.
Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur jákvætt í erindið og bendir á að ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir Dagverðardal, og því þarf að grenndarkynna byggingaráform.
8.Snerpa ehf. sækir um framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara í Hnífsdal - 2016050070
Snerpa ehf. sækir um framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara í Hnífsdal.
Skipulags- og mannvirkjanefnd telur í ljósi framlagðra gagna, að framkvæmdin geti ekki talist meiriháttar og hafi ekki umtalsverð áhrif á umhverfið eða breyti ásýnd þess og sé því ekki framkvæmdaleyfisskyld, með vísan í 1. gr. reglugerðar nr. 772/2012. Umsækjandi skal vera í samráði við tæknideild Ísafjarðarbæjar.
9.Umsókn um lóð austan við Kirkjuból 3 - 2016050012
Kristján Ólafsson sækir um lóð austan við Kirkjuból 3.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að lóðarleigusamningur undir húsið verði framlengdur um 25 ár. Einnig að gerður verði samningur um lóð í fóstur á þeim hluta sem vísað er í skv. teikningum.
10.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 13 - 1605001F
Lögð fram fundargerð 13. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa.
Fundargerð 13. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa kynnt fyrir skipulags- og mannvirkjanefnd.
- 10.1 2016050004 Brekkugata 60 fyrirspurn um byggingarleyfiAfgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 13 Byggingaráform eru samþykkt með vísan í breytingu á byggingarreglugerð 112/2012 gr.2.3.5
- 10.2 2016040080 Breiðidalur Neðri - Umsókn um byggingarleyfiAfgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 13 Byggingaráformin eru samþykkt með vísan í 2.3.4. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
- 10.3 2016040048 Aðalstræti 26 Þingeyri - Umsókn um byggingarleyfiAfgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 13 Skipulags og mannvikjanefnd samþykkir erindið. Byggingaráform samþykkt.
- 10.4 2014120061 Móar, Hesteyri - endurbyggingAfgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 13 Byggingaráform eru samþykkt.
- 10.5 2016040016 Engjavegur 20 - Umsókn um byggingarleyfiAfgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 13 Byggingaráformin eru samþykkt með vísan í 2.3.4. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
Fundi slitið - kl. 10:00.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?