Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum

123. fundur 10. janúar 2013 kl. 10:00 - 10:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Hafdís Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Rósa Helga Ingólfsdóttir formaður
  • Sædís María Jónatansdóttir deildarstjóri
  • Barði Ingibjartsson aðalmaður
  • Þóra Hansdóttir aðalmaður
  • Anna Valgerður Einarsdóttir deildarstjóri barnaverndar
  • Harpa Stefánsdóttir deildarstjóri
Fundargerð ritaði: Sædís María Jónatansdóttir 123. fundur barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum
Dagskrá
Bryndís Friðgeirsdóttir mætti ekki og enginn í hennar stað.

1.Trúnaðarmál - 2012010059

Lögð fram sjö trúnaðarmál.
Trúnaðarmálin rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum.

2.Sískráning 2012 - 2012090057

Lagt fram yfirlit yfir sískráningu í október til desember 2012.
Lagt fram til kynningar og umræður.

3.Barnaverndarstofa - Ýmis erindi 2011-2012 - 2011080017

Lagt fram bréf frá Barnaverndarstofu dags. 3. desember 2012 þar sem Barnaverndarstofa óskar eftir að fá send afrit af öllum úrskurðum og dómum sem fallið hafa í barnaverndarmálum hjá nefndinni frá og með 1. janúar 2010 og út árið 2012. Svar skal berast Barnaverndarstofu eigi síðar en 15. janúar 2013.
Lagt fram til kynningar.

4.Barnaverndarstofa - Ýmis erindi 2013 - 2013010005

Lagður fram tölvupóstur frá Barnaverndarstofu þar sem óskað er eftir upplýsingum um börn sem voru í fóstri á vegum nefndarinnar á árinu 2012. Óskað er eftir upplýsingum um nýja fóstursamninga á árinu, endurnýjaða fóstursamninga og fóstri sem lauk. Svar við erindinu óskast eigi síðar en 15. janúar nk.
Lagt fram til kynningar.

5.Barnaverndarstofa - Ýmis erindi 2013 - 2013010005

Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Barnaverndarstofu um breytt verkefni barnaverndarnefnda. Um síðustu áramót urðu breytingar á barnalögum sem fela það m.a. í sér að barnaverndarnefndir hafa ekki lengur aðkomu að málum sem tengjast umgengni. Eru barnaverndarnefndir skv. breyttum barnalögum ekki lengur umsagnaraðilar fyrir sýslumannsembættin þegar þau hafa til meðferðar mál sem tengjast umgengni foreldris við barn. Einnig hefur barnaverndarnefnd skv. breyttum barnalögum ekki lengur eftirlit með umgengni sem úrskurðað er um hjá sýslumanni eða innanríkisráðuneyti.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?