Rithöfundarheimsókn: Sigríður Hagalín Björnsdóttir

Skrá nýjan viðburð


Glíman við hamingjuna og söguna

Föstudaginn 10. maí kl. 17 fáum við rithöfundinn og blaðamanninn Sigríði Hagalín Björnsdóttur í heimsókn en hún ætlar að fjalla um bókina Hamingja þessa heims - sögulega skáldsögu sem gerist að miklu leyti á fimmtándu öld. Fimmtánda öldin er öldin sem týndist í Íslandssögunni, þegar þjóðin lenti skyndilega í hringiðu evrópskra stjórnmála og viðskiptahagsmuna. Höfundurinn ræðir m.a. muninn á skáldskap og sagnfræði, glímuna við heimildirnar og leitina að Ólöfu ríku Loftsdóttur, ríkustu og voldugustu konu Íslandssögunnar.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?