Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 9. fundur - 12. febrúar 2015
Dagskrá:
1. |
2014120023 - Endurvinnslukort |
|
Einar Bergmundur Arnbjörnsson, tækniþróunarstjóri Náttúrunnar.is, kynnti Endurvinnslukortið fyrir nefninni í gegnum myndsíma. |
||
Nefndin þakkar Einari fyrir kynninguna. |
||
|
||
2. |
2011030081 - Eftirlit - Kubbur ehf. - Sorpmál. |
|
Lögð fram drög af nýrri útgáfu endurvinnslubæklings. |
||
Erindinu frestað til næsta fundar. |
||
|
||
3. |
2015020030 - Sorpmál 2017 |
|
Umræða um sorpmál 2017 |
||
Rætt um framtíðarfyrirkomulag sorpmála og þarfagreiningu fyrir útboð á sorphirðu og -förgun 2017. |
||
|
||
4. |
2015020035 - Frumvarp til laga um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn |
|
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendi til umsagnar frumvarp til laga um |
||
Nefndin bendir á nauðsyn þess að fjármagn verði tryggt svo sveitarfélög verði ekki fyrir kostnaðarauka vegna fyrirsjáanlegrar vinnu sem ætlast verður til af þeim. |
||
|
||
5. |
2015020036 - Frumvarp til laga um stjórn vatnamála |
|
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendi til umsagnar frumvarp til laga um |
||
Lagt fram til kynningar. Nefndin gerir ekki athugasemd við frumvarpið. |
||
|
||
6. |
2015020032 - Frumvarp til laga um náttúrupassa |
|
Atvinnuveganefnd Alþingis sendi til umsagnar frumvarp til laga um náttúrupassa (heildarlög), 455. mál. |
||
Lagt fram til kynningar. Nefndin leggur ríka áherslu á að tryggt verði að fjármagn úr sameiginlegum sjóði verði nýtt í að tryggja öryggi ferðamanna og treysta innviði ferðamannastaða um allt land. |
||
|
||
7. |
2015020037 - frumvarp til laga um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum |
|
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendi til umsagnar frumvarp til laga um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum (heildarlög, strangari reglur), 512. mál. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:55
Nanný Arna Guðmundsdóttir |
|
Lína Björg Tryggvadóttir |
Kristín Hálfdánsdóttir |
|
Óðinn Gestsson |
Jóna Símonía Bjarnadóttir |
|
Helga Dóra Kristjánsdóttir |
Hálfdán Bjarki Hálfdánsson |
|
Ralf Trylla |
|
|
|