Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 43. fundur - 7. mars 2017
Dagskrá:
1. |
Sorpmál 2018 - útboð - 2016090021 |
|
Kynnt drög af skýrslu frá EFLU ehf um þarfagreiningu í sorpmálum dags. 3.3.2017. |
||
Drög að skýrslu frá Eflu ehf. verkfræðistofu kynnt umhverfis- og framkvæmdanefnd Ísafjarðarbæjar. Umhverfisfulltrúa falið að vinna málið áfram með Eflu ehf. |
||
|
||
2. |
Svæðisáætlun Sorpmál - 2015090028 |
|
Umræður um mögulega samstarfsaðila í sorpmálum. |
||
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfisnefnd Ísafjarðarbæjar leggja til að áður en haldið verður áfram við vinnu við útboð í sorpmálum, þá verði haft samband við nágrannasveitarfélög okkar Bolungarvíkurkaupstað og Súðavíkurhrepp til að skoða hvort ekki sé flötur fyrir sameiginlegu útboði. Það gefur auga leið að um sameiginlegt hagsmunamál allra sveitarfélaganna er að ræða, bæði kostnaðarlega og umhverfislega. Við leggjum til að skipuð verði nefnd með fulltrúum allra sveitarfélaganna hið fyrsta og unnið verði hratt og vel í undirbúningi að sameiginlegu útboði í sorpmálum. |
||
|
||
3. |
Fjárhagsáætlun 2018 - 2017020049 |
|
Umræða um gjaldskrár á sviði umhverfis- og framkvæmdanefndar. |
||
Frestað |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:15
Nanný Arna Guðmundsdóttir |
|
Gunnar Jónsson |
Kristín Hálfdánsdóttir |
|
Helga Dóra Kristjánsdóttir |
Gísli Elís Úlfarsson |
|
Hildur Dagbjört Arnardóttir |
Ralf Trylla |
|
Brynjar Þór Jónasson |