Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 33. fundur - 30. ágúst 2016
Dagskrá:
2. |
Sorpmál 2017 - 2015020030 |
|
Umræður um framtíðartilhögun sorpmála í Ísafjarðarbæ. |
||
Tæknideild falið að vinna málið áfram og leggja fram drög að aðgerðaráætlun fyrir næsta fund. |
||
|
||
3. |
Bílastæði innan þéttbýlis - 2016030025 |
|
Umræður um bílastæði í þéttbýli í tengslum við fjölgun ferðamanna og bílaleigubíla. |
||
Nefndin leggur til að bílastæði á Wardstúni verði fest í sessi og tæknideild skoði möguleika á að bæta við tímabundnu bílastæði á óúthlutaðri lóð á Suðurtanga. |
||
|
||
4. |
Tjöld og húsbílar innan þéttbýli í Ísafjarðarbæ - 2016020052 |
|
Lögð fram gildandi lögreglusamþykkt Ísafjarðarbæjar. |
||
Nefndin felur umhverfisfulltrúa að boða til fundar með fulltrúum Lögreglustjórans á vestfjörðum. |
||
|
||
5. |
Göngustígar í Ísafjarðarbæ - 2016070002 |
|
Umhverfisfulltrúi leggur fram teikningar að göngustígakerfi í nágrenni Ísafjarðar. |
||
Nefndin felur tæknideild að gera áætlun um aðgerðir í göngustígum og kostnaðargreina nokkrar útfærslur fyrir næsta fund. |
||
|
||
6. |
Strandlínan á Ísafirði, Eyrin í fortíð og nútíð - 2015100021 |
|
Lagt fram erindi Margrétar Birnu Auðunsdóttur og Heiðu Maríu Loftsdóttur um strandlínu á Ísafirði. Erindinu var vísað til nefndarinnar frá Hátíðarnefnd. |
||
Nefndin óskar eftir nánari kynningu á útfærslum og kostnaði við verkefnið. |
||
|
||
8. |
Brenna á Suðurtanga verslunarmannahelgi 2016 - 2016070052 |
|
Umræða um skipulagðar brennur í Ísafjarðarbæ. |
||
Nefndin telur augljóst að ekki hafi verið farið eftir þeim reglum sem settar eru í tímabundnu starfsleyfi fyrir brennu, gefið út af Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða 25. júlí 2016, til handa Mýrarboltafélagi Íslands. Umhverfisnefnd telur rétt að beina því til Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða að séð verði til þess að farið verði eftir settum reglum um brennur í landi Ísafjarðarbæjar. |
||
|
||
1. |
Ósk um samstarf við Ísafjarðarbæ - 2016080022 |
|
Bæjarráð vísar til umsagnar umhverfis- og framkvæmdanefndar erindi Dýraverndunarfélagsins Villikatta, dags. 14. ágúst, þar sem óskað er eftir samstarfi við Ísafjarðarbæ um mannúðlegar leiðir til að stemma stigu við fjölgun villi- og vergangskatta. |
||
Nefndin tekur jákvætt í erindið en bendir á að fylgja þurfi samstarfssamningur og kostnaðaráætlun. |
||
|
||
7. |
Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2016 - 2016010027 |
|
Lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um Umhverfisstofnun (heildarlög), 674. mál. |
||
Nefndin gerir ekki athugasemd við frumvarpið. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:40
Nanný Arna Guðmundsdóttir |
|
Gunnar Jónsson |
Kristín Hálfdánsdóttir |
|
Ralf Trylla |
Brynjar Þór Jónasson |
|
|