Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 26. fundur - 26. apríl 2016
Dagskrá:
1. |
Skýrsla starfshóps Sambands íslenskra sveitarfélaga um úrgangsmál - 2016040024 |
|
Lögð fram til kynningar og umsagnar skýrsla starfshóps Sambandsins um stefnumótun í úrgangsmálum, dags. 5.4.2016. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
2. |
Sauðfjárbeit innan þéttbýlis - 2016040050 |
|
Umhverfisfulltrúi óskar erftir áliti nefndarinnar á tilraunabeit sauðfjár innan þéttbýlis. Markmiðið er að hefta útbreiðslu á kerfli og lúpinu án notkunar eiturefna. Svæðið sem um ræðir er ofan Hlíðarvegs 3-7 á Ísafirði og ofan Aðalgötu 25 á Suðureyri. |
||
Nefndin tekur vel í tillögur umhverfisfulltrúa en óskar þess að tilraunabeitin verði kynnt fyrir íbúum í nánasta nágrenni. |
||
|
||
3. |
Græn vika 2016 - 2016040060 |
|
Umhverfisfulltrúi upplýsir um græna viku 2016 og leggur fram kostnaðaryfirlit frá 2015. Óskað er eftir umsögn umhverfis- og framkvæmdanefndar um áframhald verkefnisins. |
||
Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að græn vika verði dagana 21. - 29. maí. |
||
|
||
4. |
Umferðarskipulag við Eyrargötu 2 (Íshúsið) á Ísafirði - 2016040073 |
|
Tillaga formanns að endurskoðun umferðarskipulags við Eyrargötu 2 (Íshúsið) á Ísafirði. |
||
Nefndin telur núverandi ástand óviðunandi m.t.t. umferðaröryggis og felur tæknideild bæjarins að afmarka bílastæðið betur og girða fyrir þann möguleika að ekið sé frá Eyrargötu 2 út á stofnbraut. |
||
|
||
5. |
Fiskeldi í Jökulfjörðum - 2016040047 |
|
Umræða um fiskeldi í Jökulfjörðum. |
||
Nefndin tekur undir ályktun bæjarráðs og telur rétt að undanskilja Jökulfirði að svo komnu máli þegar kemur að úthlutun leyfa til fiskeldis. |
||
|
||
6. |
Dynjandi - skipulag o.fl. - 2016040074 |
|
Kristín Hálfdánsdóttir leggur til að Umhverfisstofnun verði skrifað bréf og þess óskað að fá í hendur framkvæmdaáætlun stofnunarinnar varðandi Dynjandasvæðið til ársins 2020. Þá er reiknað með að Dýrafjarðargöng verði tekin í gagnið og má búast við miklum straumi ferðamanna um svæðið. |
||
Nefndin samþykkir tillögu Kristínar. |
||
|
||
7. |
Sorpmál 2017 - 2015020030 |
|
Umræða um sorpmál í sveitarfélaginu, jarðgerð og fleira. |
||
Nefndin felur tæknideild að vinna málið áfram. |
||
|
||
8. |
Óskráðir bílar og bílhræ í Ísafjarðarbæ - 2016040075 |
|
Umræða um stöðu mála í Hnífsdal. |
||
Nefndin telur fulla ástæðu til að vera vakandi yfir málaflokknum og felur starfsmanni nefndarinnar að upplýsa hana reglulega um stöðu mála. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:55
Nanný Arna Guðmundsdóttir |
|
Erla Rún Sigurjónsdóttir |
Gunnar Jónsson |
|
Kristín Hálfdánsdóttir |
Helga Dóra Kristjánsdóttir |
|
Gísli Elís Úlfarsson |
Hálfdán Bjarki Hálfdánsson |
|
Ralf Trylla |
Brynjar Þór Jónasson |
|
|