Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis - 42. fundur - 17. febrúar 2015
Þetta var gert:
1. Frágangur innanhúss. 2011-12-0009
Ágúst Gíslason, byggingarstjóri fór yfir gang mála með framkvæmdir innanhúss. Verkið gengur mjög vel og telst vera á áætlun. Innréttingar í hús 1 eru tilbúnar á bretti og ættu að fara upp í lok mars.
2. Búnaðarkaup í hjúkrunarheimilið. 2011-12-0009
Í ljósi búnaðarskorts á núverandi rýmum í Heilbrigðisstofnun Vestfjarða telur nefndin ófullnægjandi að Velferðarráðuneytið leggi einungis til 60% fjármagns í 19 af 30 rýmum.
3. Önnur mál
Fyrirhugaður er fundur með fulltrúum Velferðarráðuneytisins næstu daga.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 13:55.
Sigurður Pétursson, formaður.
Magnús Reynir Guðmundsson. Gísli Halldór Halldórsson.
Kristín Hálfdánsdóttir . Jóhann Birkir Helgason.