Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis - 26. fundur - 4. apríl 2013
Þetta var gert:
1. Teikningar af hjúkrunarheimilinu Eyri. 2011-12-0009.
Lagðar fram frumteikningar af hjúkrunarheimilinu Eyri frá VA arkitektum, ódagsettar.
Lagt fram til kynningar.
2. Verkstaða hönnunar og framkvæmda, tímarammi framkvæmda og hönnunar. 2011-12-0009.
Gert er ráð fyrir að byggingarnefndarteikningar verði lagðar inn til byggingarfulltrúa á næstu dögum.
Byggingarleyfi gefið út í maí 2013.
Aðalteikningar, vegna uppsteypu og frágangs utanhúss ásamt útboðsgögnum 1. júní 2013.
Tilboð opnuð 25. júní 2013.
Sérteikningar, frágangur innanhúss ásamt útboðsgögnum 1. október 2013.
Tilboð opnuð í frágang innanhúss 29. október 2013.
Verklok á haustmánuðum 2014.
Bæjarstjóri upplýsti nefndarmenn um rekstaráætlun fasteignar hjúkrunarheimilisins og viðræður við Velferðarráðuneytið um endurskoðun á samningi vegna vísitöluhækkunar.
Nefndin óskar eftir því að Heilbigðisstofnun Vestfjarða hefji hönnunarvinnu á tengingu við hjúkrunarheimilið í samráði við hönnuði hjúkrunarheimisins.
3. Samningar við Verkís um eftirlit o.fl. 2011-12-0009.
Á 17. fundi nefndarinnar var samþykkt að gera samning við Verkís um verkefnisstjórnun og eftirlit á byggingartíma.
Nefndin felur sviðsstjóra og formanni að ræða við Verkís um samning varðandi eftirlit á framkvæmdatíma.
4. Samningur við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða um rekstur hjúkrunarheimilisins Eyrar. 2013-04-0026.
Erindinu frestað.
5. Umsóknir um starf byggingarstjóra og úrvinnsla umsókna. 2013-01-0055.
Teknar fyrir umsóknir um starf byggingarstjóra. Alls sóttu 22 aðilar um starfið.
Eftir ráðgjöf frá Capacent ætlar nefndin að ræða við 5 hæfustu umsækjendurna um starfið.
6. Önnur mál. 2011-12-0009.
Rætt um lóðarhönnun hjúkrunarheimilisins Eyrar.
Nefndin felur sviðsstjóra að ræða við Teiknistofuna Eik um hönnun lóðarinnar.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 15:50.
Eiríkur Finnur Greipsson, formaður.
Sigurður Pétursson
Svanlaug Guðnadóttir.
Daníel Jakobsson.
Jóhann Birkir Helgason.