Félagsmálanefnd - 410. fundur - 25. ágúst 2016
Sólveig Guðnadóttir mætti ekki til fundar og enginn í hennar stað.
Dagskrá:
1. |
Trúnaðarmál. - 2011090094 |
|
Eitt trúnaðarmál lagt fram til afgreiðslu í félagsmálanefnd. |
||
Trúnaðarmálið afgreitt og fært til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar. |
||
|
||
2. |
Samband íslenskra sveitarfélaga, ýmis erindi og fundargerðir 2016 - 2016020019 |
|
Lagður er fram tölvupóstur Vigdísar Häsler, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, frá 4. maí sl. ásamt tölvupósti Lilju Borgar Viðarsdóttur, skrifstofu mannréttinda og sveitarfélaga í innanríkisráðuneytinu, varðandi orðsendingu verkefnisstjórnar um jafnt búsetuform barna. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
3. |
Sumardvöl fatlaðra barna í Reykjadal 2014-2016 - 2014090056 |
|
Lagt fram erindi frá Vilmundi Gíslasyni framkvæmdastjóra Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra dags. 10. ágúst 2016, þar sem óskað er eftir þátttöku í kostnaði við rekstur sumarbúða í Reykjadal fyrir fötluð börn og ungmenni. |
||
Félagsmálanefnd samþykkir að veita umbeðinn styrk að fjárhæð kr. 147.000,-. |
||
|
||
4. |
Húsfélag Hlífar II, ársreikningur 2015. - 2016070045 |
|
Lagður fram ársreikningur fyrir Húsfélag Hlífar II fyrir árið 2015, ásamt skýrslu stjórnar fyrir sama ár. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
5. |
Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2016 - 2016010027 |
|
Lagður fram tölvupóstur dags. 20. júlí sl. frá Maríu Sæmundsdóttur, sérfræðingi hjá velferðarráðuneytinu, þar sem óskað er eftir umsögnum og athugasemdum við frumvarp til nýrra laga um þjónustu við fatlað fólk með sérstakar þjónustuþarfir og frumvarp til laga um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. |
||
Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar vill gera eftirfarandi athugasemdir við drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, með síðari breytingum. |
||
|
||
6. |
Fjárhagsaðstoð - 2012120016 |
|
Lagt fram vinnuskjal með drögum að nýjum reglum um fjárhagsaðstoð. |
||
Umræður um nýjar reglur. Starfsmanni falið að vinna áfram að reglunum. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:40
Gunnhildur Björk Elíasdóttir |
|
Magnús Þór Bjarnason |
Hildur Elísabet Pétursdóttir |
|
Steinþór Bragason |
Guðjón Már Þorsteinsson |
|
Sædís María Jónatansdóttir |
Margrét Geirsdóttir |
|
Þóra Marý Arnórsdóttir |