Félagsmálanefnd - 389. fundur - 26. ágúst 2014
Dagskrá:
1. |
2012110034 - Endurskoðun erindisbréfa nefnda |
|
Lögð fram drög að erindisbréfi félagsmálanefndar. |
||
Rætt um erindisbréfið og starfsmönnum falið að gera breytingar í samræmi við umræður á fundinum. |
||
|
||
2. |
2014020030 - Nefndarmenn 2014 |
|
Lagðar fram siðareglur kjörinna fulltrúa í Ísafjarðarbæ. |
||
Nefndarmenn undirrituðu siðareglurnar. Starfsmenn fjölskyldusviðs fóru yfir vinnuhætti félagsmálanefndar og ferli mála sem fara fyrir nefndina. |
||
|
||
3. |
2011090094 - Trúnaðarmál. |
|
Rætt um ferli trúnaðarmála sem fara fyrir félagsmálanefnd. |
||
|
||
4. |
2014080057 - Námskeið fyrir félagsmálanefndir og starfsfólk félagsþjónustu sveitarfélaga 2014. |
|
Lagður fram tölvupóstur frá Gyðu Hjartardóttur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 20. ágúst 2014. Efni tölvupóstsins er námskeið fyrir félagsmálanefndir og starfsfólk félagsþjónustunnar sem fyrirhugað er í byrjun árs 2015. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
5. |
2014010071 - Samb.ísl.sveitarf. - Ýmis erindi 2014-2015 |
|
Lagður fram tölvupóstur frá Önnu G. Björnsdóttur dags. 25. júní s.l. þar sem tilkynnt er um landsfund jafnréttisnefnda sem verður haldinn í Reykjavík þann 19. september n.k. |
||
Félagsmálanefnd samþykkir að senda tvo fulltrúa á fundinn. |
||
|
||
6. |
2010050008 - Jafnréttisáætlun og jafnlaunakönnun |
|
Lögð fram drög að niðurstöðum á samanburði á launum karla og kvenna hjá Ísafjarðarbæ. |
||
Umræður um niðurstöðurnar og starfsmönnum falið að koma athugasemdum til Höllu Hafbergsdóttur starfsmanns Rannsóknarstofnunar háskólans á Akureyri sem vinnur skýrsluna fyrir Ísafjarðarbæ. |
||
|
||
7. |
2014080060 - Fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs fyrir árið 2015 |
|
Lögð fram gjaldskrá fjölskyldusviðs Ísafjarðarbæjar. |
||
Umræður um gjaldskrá fjölskyldusviðs og starfsmönnum falið að útfæra tillögur nefndarmanna. |
||
|
||
8. |
2014080061 - Þjónustuhópur aldraðra, nefndarmenn |
|
Félagsmálanefnd ræðir tillögur um fulltrúa í þjónustuhóp aldraðra. |
||
Tilnefningum frestað til næsta fundar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:10
Gunnhildur Björk Elíasdóttir |
|
Guðný Harpa Henrysdóttir |
Aron Guðmundsson |
|
Hildur Elísabet Pétursdóttir |
Steinþór Bragason |
|
Sædís María Jónatansdóttir |
Hafdís Gunnarsdóttir |
|
Margrét Geirsdóttir |
Anna Valgerður Einarsdóttir |
|
|