Félagsmálanefnd - 365. fundur - 14. febrúar 2012
Dagskrá:
1. |
2012010012 - Undanþága vegna fjölda barna í daggæslu. |
|
Lagt fram erindi frá Ólöfu Á. Þorkelsdóttur Öfjörð, dagforeldri, þar sem hún óskar eftir endurskoðun á synjun um undanþágu vegna fjölda barna í daggæslu, en Ólöf óskar eftir samþykki til að taka 6. barnið í vistun. |
||
Sigurlína Jónasdóttir daggæslu- og leikskólafulltrúi mætti til fundar undir þessum lið og svaraði spurningum nefndarmanna vegna þessa erindis. Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar frestar afgreiðslu á erindinu til næsta fundar nefndarinnar og felur starfsmönnum að afla upplýsinga frá öðrum sveitarfélögum um sambærileg mál. |
||
|
||
2. |
2011090094 - Trúnaðarmál. |
|
Trúnaðarmál lögð fram til afgreiðslu í félagsmálanefnd. |
||
10 trúnaðarmál bókuð í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar. |
||
|
||
3. |
2012020048 - Skipurit fjölskyldusviðs Ísafjarðarbæjar. |
|
Lögð fram tillaga að nýju skipuriti fyrir fjölskyldusvið Ísafjarðarbæjar. |
||
Félagsmálanefnd leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að skipuritið verði samþykkt eftir breytingar í samræmi við umræður á fundinum. |
||
|
||
4. |
2012010013 - Starfsmannahandbók. |
|
Lögð fram starfsmannahandbók fyrir þjónustueiningar á fjölskyldusviði Ísafjarðarbæjar ásamt sér köflum fyrir málefni aldraðra og málefni fatlaðra. |
||
Félagsmálanefnd lýsir ánægju sinni með handbókina og felur starfsmönnum að gera breytingar í samræmi við umræður á fundinum og í kjölfarið að hefja kynningu á henni. |
||
|
||
5. |
2012020051 - Samþykkt um skipan félagsmála í Ísafjarðarbæ. |
|
Lögð fram samþykkt um skipan félagsmála í Ísafjarðarbæ, sem samþykkt var í bæjarstjórn þann 19. desember árið 2000. |
||
Félagsmálanefnd felur starfsmönnum fjölskyldusviðs að hefja vinnu við endurskoðun samþykktar um skipan félagsmála í Ísafjarðarbæ og leggja drög að nýrri skipan fyrir næsta fund nefndarinnar. |
||
|
||
6. |
2012020052 - Verklagsreglur starfsmanna í félagsþjónustu. |
|
Lögð fram fyrstu drög að verklagsreglum starfsmanna í félagsþjónustu er starfa hjá fjölskyldusviði Ísafjarðarbæjar. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
7. |
2012020053 - Fjölskyldusvið Ísafjarðarbæjar. |
|
Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Ísafjarðarbæjar, lagði fram skýrslu um málefni fatlaðra hjá sveitarfélaginu árið 2011. |
||
Skýrslan lögð fram til kynningar. |
||
|
||
8. |
2012010079 - Félagsleg heimaþjónusta. |
|
Umræður um félagslega heimaþjónustu. Endurskoða þarf gjaldskrá heimaþjónustunnar með tilliti til helgarþjónustu og tekjuviðmiða. |
||
Félagsmálanefnd felur deildarstjóra í heimaþjónustu og deildarstjóra í félagsþjónustu að endurskoða gjaldskrána og koma með tillögur á næsta fund nefndarinnar. |
||
|
||
9. |
2010110008 - Styrkir til sveitarfélaga vegna langveikra barna og barna með ADHD. |
|
Lagt fram áframsent erindi frá bæjarráði, sem er bréf frá velferðarráðuneyti dagsett 30. desember sl., þar sem fram kemur, að Ísafjarðarbær hefur hlotið loforð um styrk að upphæð kr. 1.620.000.-, til verkefna í þágu langveikra barna og barna með ADHD-greiningu. |
||
Félagsmálanefnd fagnar styrkveitingunni og lýsir ánægju sinni með verkefnið sem styrknum er veitt til. |
||
|
||
10. |
2012010047 - Styrkbeiðni vegna forvarnastarfs 2012. |
|
Lagt fram áframsent erindi frá bæjarráði sem er bréf frá Saman-hópnum dagsett 13. janúar s.l., þar sem beðið er um fjárstuðning vegna forvarnarstarfs á árinu 2012. Leiðarljós í starfi hópsins eru niðurstöður rannsókna sem sýna mikilvægi og áhrifamátt foreldra í forvörnum. |
||
Félagsmálanefnd telur sér ekki fært að styðja framtakið þar sem nefndin styrkir sambærileg verkefni í heimabyggð en óskar Saman-hópnum velfarnaðar í störfum sínum. |
||
|
||
11. |
2007030053 - Fundargerð Þjónustuhóps aldraðra. |
|
Lögð fram fundargerð 69. fundar þjónustuhóps aldraðra. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
|
|
12. |
2010070042 - Fundargerðir 2010/2011 - Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði |
|
Lagðar fram fundargerðir 10., 11., 12., 13. og 14. fundar nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði. |
||
Fundargerðir lagðar fram til kynningar. |
||
|
Önnur mál.
A) Almenningssamgöngur í Ísafjarðarbæ 2012-2016. 2012-02-0018
Félagsmálanefnd telur ekki ástæðu til að gera breytingar á núgildandi gjaldskrá á almenningssamgöngum, en telur rétt að benda á að samkvæmt lögum eru einstaklingar skilgreindir sem börn til 18 ára aldurs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:06
Guðfinna M Hreiðarsdóttir, formaður.
Jón Reynir Sigurðsson.
Rannveig Þorvaldsdóttir.
Sædís María Jónatansdóttir.
Harpa Stefánsdóttir.
Margrét Geirsdóttir.
Anna Valgerður Einarsdóttir.
Kristrún Helga Ólafsdóttir.
Helga Björk Jóhannsdóttir.