Félagsmálanefnd - 353. fundur - 15. febrúar 2011
Mætt voru: Guðfinna Hreiðarsdóttir, formaður, Gunnar Þórðarson, Jón Reynir Sigurðsson, Ragnhildur Sigurðardóttir og Rannveig Þorvaldsdóttir. Jafnframt sátu fundinn Margrét Geirsdóttir, forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar, Anna Valgerður Einarsdóttir, Sædís María Jónatansdóttir, Harpa Stefánsdóttir og Sigfríður Hallgrímsdóttir, starfsmenn Skóla- og fjölskylduskrifstofu.
Sædís María Jónatansdóttir ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
1. Trúnaðarmál.
Fimm trúnaðarmál rædd og fært til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.
2. Myndun samráðshóps áfallahjálpar í lögregluumdæmum landsins.
2011-02-0025.
Lagt fram bréf frá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða dagsett 27. janúar sl., ásamt afriti af bréfi Samráðshóps áfallahjálpar í SST dagsettu 29. desember 2010. Í bréfunum er fjallað um myndun samráðshópa áfallahjálpar í lögregluumdæmum landsins.
Lagt fram til kynningar.
3. Starfsmarkmið vegna stefnu Ísafjarðarbæjar í félags- og velferðarmálum.
2007-12-0001.
Lögð fram starfsmarkmið félagsmálanefndar vegna stefnu Ísafjarðarbæjar í félags- og velferðarmálum fyrir árið 2011.
Félagsmálanefnd samþykkir starfsmarkmiðin fyrir sitt leyti.
4. Umsókn um daggæsluleyfi. 2011-02-0034.
Lögð fram greinargerð Sigurlínu Jónasdóttur, leikskóla- og daggæslufulltrúa, þar sem Auður Helgadóttir kt. 060878-4209, sækir um leyfi til daggæslu í heimahúsi.
Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar veitir viðkomandi leyfi til daggæslu í heimahúsi á grundvelli greinargerðarinnar.
5. Fjárhagsaðstoð.
Kynnt skýrsla um ný neysluviðmið fyrir heimili á Íslandi, sem kynnt eru á heimasíðu Velferðarráðuneytisins.
6. Rannsókn á ofbeldi gegn konum: Reynsla kvenna á aldrinum 18-80 ára á Íslandi. 2011-02-0013.
Lögð fram til kynningar skýrslan Rannsókn á ofbeldi gegn konum: Reynsla kvenna á aldrinum 18-80 ára á Íslandi, sem unnin var af þeim Elísabetu Karlsdóttur og Ásdísi A. Arnalds fyrir Félags- og tryggingamálaráðuneytið í desember 2010.
7. Ungt fólk utan skóla 2009. 2011-01-0039.
Lögð fram til kynningar skýrslan Ungt fólk utan skóla 2009: Félagsleg staða 16-20 ára ungmenna á Íslandi, sem ekki stunda nám við framhaldsskóla árið 2009, sem greinir frá niðurstöðum úr rannsókn er framkvæmd var 2009 af Rannsóknum og greiningu fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið og Reykjavíkurborg.
8. Önnur mál.
A. Félagsmálanefnd fór og skoðaði nýtt húsnæði Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar á annarri hæð í Stjórnsýsluhúsinu. Starfsemin mun hefjast í nýju húsnæði á næstu dögum.
Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 17:10
Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, formaður
Gunnar Þórðarson
Jón Reynir Sigurðsson
Rannveig Þorvaldsdóttir
Ragnhildur Sigurðardóttir
Sædís María Jónatansdóttir
Anna V. Einarsdóttir
Sigfríður Hallgrímsdóttir
Harpa Stefánsdóttir
Margrét Geirsdóttir