Félagsmálanefnd - 348. fundur - 2. nóvember 2010
Mætt voru: Guðfinna Hreiðarsdóttir, formaður, Gunnar Þórðarson, Ragnhildur Sigurðardóttir og Rannveig Þorvaldsdóttir. Jón Reynir Sigurðsson boðaði forföll og enginn mætti í hans stað. Jafnframt sátu fundinn Margrét Geirsdóttir, forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu, Anna Valgerður Einarsdóttir og Sædís María Jónatansdóttir, starfsmenn Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar.
Margrét Geirsdóttir ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
1. Trúnaðarmál.
Eitt trúnaðarmál rætt og fært til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.
Rætt um Stefnu Ísafjarðarbæjar í félags- og velferðarmálum. Umræður um breytingar á einstökum köflum stefnunnar. Umræður um breytingar á kaflanum um húsnæðismál. Jafnframt var rætt um endurskoðunarferli stefnunnar. Málið tekið fyrir á ný á næsta fundi nefndarinnar.
3. Fjárhagsáætlun 2011.
Rætt um gerð fjárhagsáætlunar ársins 2011. Forstöðumaður sagði frá stöðunni í fjárhagsáætlunargerð ársins 2011. Gert er ráð fyrir fundi í félagsmálanefnd vegna fjárhagsáætlunarinnar þann 10. nóvember 2010.
4. Húsaleigubætur og sérstakar húsaleigubætur, áætlun 2011.
Lagðar fram til kynningar áætlanir vegna greiðslu húsaleigubóta og sérstakra húsaleigubóta á árinu 2011. Fjárhagsáætlanirnar gætu tekið breytingum þegar fyrir liggur samkomulag ríkis og sveitarfélaga um fyrirkomulag húsaleigubóta og fjármögnun á þeim, en fyrra samkomulag rann út í mars s.l. Í fjárlagafrumvarpi Alþingis er gengið út frá því sem aðhaldsráðstöfun að í nýju samkomulagi ríkis og sveitarfélaga verði gerðar breytingar á kerfinu sem dragi úr útgjöldum.
5. Þjónustuhópur aldraðra. 2007-03-0053
Lögð fram til kynningar fundargerð þjónustuhóps aldraðra frá 65. fundi.
6. Önnur mál.
A. Bréf frá félags- og tryggingamálanefnd Alþingis. 2010-11-0006. Umsögn um frumvarp.
Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 17:35.
Rannveig Þorvaldsdóttir
Gunnar Þórðarson
Ragnhildur Sigurðardóttir
Sædís María Jónatansdóttir
Anna Valgerður Einarsdóttir
Margrét Geirsdóttir