Félagsmálanefnd - 338. fundur - 5. mars 2010
Mætt voru: Gísli H. Halldórsson, formaður, Rannveig Þorvaldsdóttir, Elín Halldóra Friðriksdóttir og Inga S. Ólafsdóttir. Kristín Oddsdóttir sat fundinn í forföllum Hrefnu R. Magnúsdóttur. Jafnframt sátu fundinn Margrét Geirsdóttir og Anna Valgerður Einarsdóttir starfsmenn Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar.
Margrét Geirsdóttir ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
1. Evrópusáttmáli um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum og héruðum.
Fjallað um sáttmálann. Félagsmálanefnd telur ljóst að ákveðinn kostnaður muni fylgja samþykkt og innleiðingu sáttmálans fyrir sveitarfélagið. Sáttmálinn sem slíkur gerir þó í raun sambærilegar kröfur til sveitarfélagsins og lögin um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Starfsmanni falið að afla upplýsinga um hve mikill kostnaður gæti falist í því fyrir sveitarfélagið að samþykkja sáttmálann.
2. Reglur Ísafjarðarbæjar um ýmsa þjónustu.
Fjallað um reglur Ísafjarðarbæjar um félagslega heimaþjónustu í Ísafjarðarbæ og reglur um ferðaþjónustu fatlaðra í Ísafjarðarbæ. Starfsmanni falið að gera breytingar á reglunum í samræmi við umræður á fundinum.
3. Félagslegar leiguíbúðir, sérstakar húsaleigubætur og ábyrgðir.
Fjallað um félagslegt leiguíbúðakerfi sveitarfélagsins. Félagsmálanefnd telur nauðsynlegt að gera breytingar á fyrirkomulagi leigu á félagslegum íbúðum. Formanni og forstöðumanni falið að óska eftir fundi með bæjarráði og skrifa jafnframt greinargerð þar sem fram koma hugmyndir sem ræddar voru á fundinum. Umfjöllun um sérstakar húsaleigubætur og ábyrgðir frestað.
4. Önnur mál 2010-02-0070.
A. Jöfnum leikinn - handbók og námskeið um kynjasamþættingu.
Lagt fram til kynningar bréf frá Jafnréttisstofu, dags. 12. febrúar 2010, ásamt handbókinni Jöfnum leikinn sem fjallar um kynjasamþættingu. Jafnréttisstofa býður sveitarfélögum upp á námskeið um kynjasamþættingu þar sem rætt er um stöðu jafnréttismála á Íslandi og farið yfir þær aðferðir sem fjallað er um í bókinni. Starfsmanni falið að leita upplýsinga hjá Jafnréttisstofu um námskeiðið.
Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 18:01
Gísli H. Halldórsson, formaður.
Kristín Oddsdóttir.
Rannveig Þorvaldsdóttir.
Elín Halldóra Friðriksdóttir
Inga S. Ólafsdóttir.
Margrét Geirsdóttir.
Anna Valgerður Einarsdóttir.