Félagsmálanefnd - 290. fundur - 4. september 2007
Mætt voru: Gísli H. Halldórsson, formaður, Hrefna R. Magnúsdóttir, Rannveig Þorvaldsdóttir og Ásthildur Gestsdóttir. Rósamunda Baldursdóttir mætti sem varamaður fyrir Elínu H. Friðriksdóttur. Jafnframt sátu fundinn Margrét Geirsdóttir forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar og Sædís María Jónatansdóttir starfsmaður skrifstofunnar.
Margrét Geirsdóttir ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
1. Trúnaðarmál.
Trúnaðarmál rædd og færð til bókar í trúnaðarmálamöppu félagsmálanefndar.
2. Málefni Félagsbæjar, Flateyri. 2007-07-0008.
Rætt um málefni Félagsbæjar, Flateyri. Þar sem samningur Ísafjarðarbæjar við verktaka sem sá um rekstur félagsstarfs aldraðra í húsnæði félags- og menningarmiðstöðvarinnar, Hafnarstræti 11, Flateyri er fallinn úr gildi er æskilegt að fá álit samstarfsaðila um Félagsbæ á því hvernig rekstri þess skuli háttað og hvort taka beri fleiri rekstrarþætti inn í slíkan samning. Jafnframt telur nefndin rétt að endurskoða samstarfssamninginn með vísan til 6. gr. hans.
3. Gamla Apotekið ? stöðumat í júní 2007. 2007-07-0014.
Rætt um stöðu Gamla Apoteksins. Félagsmálanefnd leggur til að farið verði í endurskoðun á rekstri og hlutverki Gamla Apoteksins. Nefndin felur starfsmanni að óska eftir viðræðum við fulltrúa frá Hollvinasamtökum MÍ, Vá-Vest og Rauða krossinum að höfðu samráði við Íþrótta- og tómstundanefnd Ísafjarðarbæjar.
4. Reglur Ísafjarðarbæjar um veitingu fjárhagsaðstoðar.
Rætt um drög að nýjum reglum um veitingu fjárhagsaðstoðar í Ísafjarðarbæ. Félagsmálanefnd leggur til við Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að þær verði samþykktar.
5. Önnur mál.
A. Rætt um öryggiskerfið á Hlíf. Félagsmálanefnd samþykkir að fram fari endurskoðun á öryggiskerfinu.
Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 18:08.
Gísli H. Halldórsson, formaður.
Rósamunda Baldursdóttir
Rannveig Þorvaldsdóttir
Hrefna R. Magnúsdóttir
Ásthildur Gestsdóttir.
Margrét Geirsdóttir, forstöðum. Skóla- og fjölsk.skr.
Sædís María Jónatansdóttir, ráðgjafi Skóla- og fjölskylduskr.