Félagsmálanefnd - 283. fundur - 17. apríl 2007
Mætt voru: Gísli H. Halldórsson, formaður, Hrefna R. Magnúsdóttir, Rannveig Þorvaldsdóttir og Ásthildur Gestsdóttir. Elín Halldóra Friðriksdóttir boðaði forföll og mætti Rósamunda Baldursdóttir í hennar stað. Jafnframt sátu fundinn Ingibjörg María Guðmundsdóttir, forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar og Margrét Geirsdóttir, ráðgjafi á Skóla- og fjölskylduskrifstofu.
Ingibjörg María Guðmundsdóttir ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
1. Trúnaðarmál.
Trúnaðarmál rædd og færð til bókar í trúnaðarmálamöppu félagsmálanefndar.
2. Tilnefning fulltrúa á landsfund jafnréttisnefnda.
Landsfundur jafnréttisnefnda verður haldinn í Fjarðabyggð dagana 4. og 5. júní n.k.
Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar samþykkir að Rannveig Þorvaldsdóttir verði fulltrúi nefndarinnar á landsfundinum.
3. Reglur Ísafjarðarbæjar um veitingu fjárhagsaðstoðar.
Fram haldið vinnu nefndarinnar við endurskoðun reglna um veitingu fjárhagsaðstoðar.
Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl.17:35.
Gísli H. Halldórsson, formaður.
Rósamunda Baldursdóttir.
Rannveig Þorvaldsdóttir.
Hrefna R. Magnúsdóttir.
Ásthildur Gestsdóttir.
Ingibjörg María Guðmundsdóttir, forstm. Skóla- og fjölskylduskrifstofu.
Margrét Geirsdóttir, ráðgjafi.