Félagsmálanefnd - 275. fundur - 7. nóvember 2006
Mætt voru: Gísli H. Halldórsson, formaður, Hrefna R. Magnúsdóttir, Rannveig Þorvaldsdóttir og Ingibjörg María Guðmundsdóttir yfirmaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar.
Ásthildur Gestsdóttir og Jón Svanberg Hjartarson boðuðu forföll, í þeirra stað mættu Elín Friðriksdóttir og Gréta Gunnarsdóttir.
Ingibjörg María Guðmundsdóttir ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
1. Trúnaðarmál.
Trúnaðarmál rædd og færð til bókar í trúnaðamálabók félagsmálanefndar.
2. Styrkbeiðni Kvennaathvarfs. 2006-10-0073
Lagt fram bréf frá Þórlaugu R. Jónsdóttur, rekstrarstjóra Kvennaathvarfsins, dagsett í október s.l. þar sem óskað er eftir 100.000 kr. rekstrarstyrk fyrir komandi starfsár.
Félagsmálanefnd telur sér ekki fært að verða við beiðni Kvennaathvarfsins og leggur áherslu á, í ljósi fjárhagsstöðu bæjarsjóðs, að beita kröftum sínum innan sveitarfélagsins.
3. Verklagsreglur við úthlutun íbúða í forgang. 2006-07-0038
Lagðar fram verklagsreglur fyrir starfsmenn þegar meta þarf þörf á forgangi, að húsnæði hjá Fasteignum Ísafjarðarbæjar, í samræmi við lög um félagsþjónustu og samþykkt Fasteigna Ísafjarðarbæjar ehf. Reglurnar hafa verið kynntar stjórn Fasteigna Ísafjarðarbæjar.
Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemd við drögin utan orðalagsbreytinga í 6. gr. í verklagsreglum.
4. Sérstakar húsaleigubætur.
Lagðar fram upplýsingar um hugsanlega rétthafa sérstakra húsaleigubóta miðað við tillögur sem fram komu á vinnufundi nefndarinnnar.
Frekari afgreiðslu frestað.
5. Fjárhagsáætlun 2007. 2006-10-0014
Lagðar fram upplýsingar frá Hlíf I vegna viðbótarverkefna og fjárfestingabeiðna fyrir næsta fjárhagsár. Upplýst um stöðu mála við gerð fjárhagsáætlunar.
Lagt fram til kynningar.
6. Beiðni Stígamóta um fjárframlag. 2006-10-0123
Lagt fram bréf frá Stígamótum þar sem óskað er eftir fjárframlagi frá sveitarfélögum fyir n.k. rekstrarár samtakanna. Vísað er til starfsemi á Ísafirði í tengslum við aukna fjárþörf.
Félagsmálanefnd lýsir yfir vilja til að taka þátt í verkefnum Stígamóta, sem tengjast Ísafjarðarbæ en óskar eftir nánari upplýsingum.
7. Tilnefning í þjónustuhóp aldraðra. 2006-09-0067
Lögð fram tilkynning frá bæjarráði þar sem fram kemur að Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ hefur tilnefnt þau Helga Sigmundsson, lækni og Halldóru Hreinsdóttur, hjúkrunarfræðing, sem aðalmenn í þjónustuhóp. Varamenn eru Fjölnir F. Guðmundsson, læknir og Rannveig Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Lagt fram til kynningar.
8. Vinnufundur Vá-Vest um forvarnir.
Lagt fram bréf frá Vá-Vest dags. 10. október s.l., um vinnufund sem Vá-Vest stendur fyrir með formönnum nefnda á svæðinu þann 8. nóvember n.k.
Rætt um forvarnir almennt og hvaða áherslur formaður skuli fara með á fundinn.
Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl.18:30.
Gísli H. Halldórsson, formaður.
Gréta Gunnarsdóttir.
Elín Halldóra Friðriksdóttir.
Rannveig Þorvaldsdóttir.
Hrefna R. Magnúsdóttir.
Ingibjörg María Guðmundsdóttir, forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu.