Félagsmálanefnd - 267. fundur - 11. apríl 2006
Mætt voru: Kristjana Sigurðardóttir, formaður, Helga Sigurgeirsdóttir, Védís Geirsdóttir, Jón Svanberg Hjartarson og Gréta Gunnarsdóttir.
Jafnframt sátu fundinn Anna Valgerður Einarsdóttir og Margrét Geirsdóttir, starfsmenn Skóla- og fjölskylduskrifstofu.
Anna Valgerður Einarsdóttir ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
1. Trúnaðarmál.
Trúnaðarmál rædd og færð til bókar í lausblaðamöppu félagsmálanefndar.
2. Umsókn til Jöfnunarsjóðs um endurgreiðslu húsaleigubóta. 2005-11-0050.
Lagt fram til kynningar bréf til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, um endurgreiðslu á húsaleigubótum í Ísafjarðarbæ á 1. ársfjórðungi ársins 2006.
3. Samtök um kvennaathvarf ? ársskýrsla. 2006-04-0016.
Lögð fram til kynningar ársskýrsla Samtaka um kvennaathvarf ásamt nokkrum bæklingum, sem samtökin hafa gefið út.
4. Uppbygging á þjónustu við fólk með geðfötlun í Ísafjarðarbæ. 2006-03-0049.
Lagt fram til kynningar bréf dagsett 9. mars 2006 til félagsmálaráðuneytisins frá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Vestfjörðum þar sem tilkynnt er, að send hafi verið inn umsókn þar sem óskað sé eftir fjármagni, til að byggja upp heildstæða þjónustu við fólk með geðfötlun í Ísafjarðarbæ. Umsóknin tengist áformum stjórnvalda, um að byggja upp þjónustu við geðfatlaða fyrir hluta af því fjármagni sem fékkst við sölu Símans. Starfsmaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu hefur verið aðili að undirbúningi málsins.
Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 18:10.
Kristjana Sigurðardóttir, formaður
Helga Sigurgeirsdóttir.
Védís Geirsdóttir.
Jón Svanberg Hjartarson.
Gréta Gunnarsdóttir.
Anna Valgerður Einarsdóttir.
Margrét Geirsdóttir.