Byggingarnefnd - 27. fundur - 17. september 2008
Mættir eru Þorsteinn Jóhannesson, formaður, Svanlaug Guðnadóttir, Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, skólastjóri, Jóna Benediktsdóttir, Jóhanna Ásgeirsdóttir, aðstoðarskólastjóri og Jóhann Birkir Helgason, sviðsstjóri umhverfissviðs, er jafnframt ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
1. Lóðarmál. 2005-06-0019
Farið yfir stöðu mála vegna framkvæmda við skólalóðina, verkið telst vera á áætlun. Greiðslur til verktaka eru komar í kr. 18.139.590,- Eftir er að leggja gúmmíundirlag undir leiktæki og fleiri stöðum, gert er ráð fyrir að því verði lokið 26. september.
2. Framkvæmdir við viðbyggingu Grunnskólans á Ísafirði. 2005-06-0019
Greiðslur til verktaka eru komnar í kr. 474.582.950,-. Verkinu er lokið, fyrri lokaúttekt hefur farið fram og nokkar athugasemdir gerðar, seinni lokaúttekt fer fram í lok september.
3. Önnur mál. 2005-06-0019
Svar við fyrirspurn Jónu Benediktsdóttur frá síðasta fundi.
- Hvenær var ákvörðun tekin að setja upp loftræsikerfi? Þegar hafin var vinna við hönnun hússins var ljóst að leggja þurfti loftræsilagnir inn í geymslur, salerni og lyftu sem eru inn í miðju húsinu og engin opnanleg fög til staðar. Til að uppfylla byggingarreglugerð var ljóst að leggja þurfti lagnir á þessa staði. Loftræsihönnuður lagði svo til að úr því verið væri að leggja lagnir í gegnum allan skólann þá legði hann til að bætt yrði við kerfið og skólastofunum bætt við.
- Hver tók ákvörðunina? Sviðstjóri umhverfissviðs tók þá ákvörðun að skólinn þyrfti að uppfylla allar reglugerðir og samþykkti tillögu hönnuðar um viðbót á kerfinu.
- Hvað kostaði loftræsikerfið? Kostnaður loftræsiverktaka er um 25 millj.
Jóna Benediktsdóttir telur að þessa ákvörðun hefði átt að bera undir nefndina.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:15
Þorsteinn Jóhannesson, formaður.
Svanlaug Guðnadóttir.
Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, skólastjóri.
Jóhann Birkir Helgason, sviðsstjóri umhverfissviðs.
Jóna Benediktsdóttir.
Jóhanna Ásgeirsdóttir.