Byggingarnefnd - 21. fundur - 15. október 2007
Mættir eru Þorsteinn Jóhannesson, formaður, Svanlaug Guðnadóttir, Jóna Benediktsdóttir, Skarphéðinn Jónsson, skólastjóri, Einar Ólafsson, arkitekt og Jóhann Birkir Helgason, sviðsstjóri umhverfissviðs, er jafnframt ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
1. Innréttingar og laus búnaður.
Farið yfir þær ábendingar sem faggreinakennarar gerðu við innréttingar. Arkitekt falið að uppfæra teikningarnar miðað við framkomar ábendingar.
2. Framkvæmdir við viðbyggingu Grunnskólans á Ísafirði.
Farið yfir stöðu mála og að mati eftirlitsmanns er verkið á áætlun. Greiðslur til verktaka eru komar í kr. 181.867.242,-.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 14:10.
Þorsteinn Jóhannesson, formaður.
Svanlaug Guðnadóttir.
Jóna Benediktsdóttir.
Jóhann Birkir Helgason, sviðsstjóri umhverfissviðs.
Skarphéðinn Jónsson, skólastjóri.
Einar Ólafsson, arkitekt.