Byggingarnefnd - 18. fundur - 30. apríl 2007
Mættir eru Þorsteinn Jóhannesson, formaður, Svanlaug Guðnadóttir, Jóna Benediktsdóttir, Skarphéðinn Jónsson, skólastjóri og Jóhann Birkir Helgason, sviðsstjóri umhverfissviðs, er jafnframt ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
1. Brunngata 20, Ísafirði, ósk um breytingu að aðal- og deiliskipulagi. (2006-08-0010)
Erindi frá umhverfisnefnd Ísafjarðarbæjar þar sem óskað er umsagnar byggingarnefndar Grunnskólans á Ísafirði á erindi Kristjáns H. Lyngmo dagsett 7. mars 2007, þar sem óskað er eftir að Ísafjarðarbær breyti aðal- og deiliskipulagi lóðarinnar að Brunngötu 20, Ísafirði. Fyrirhugað er að byggja á lóðinni 3-5 hæða steinhús með 5-9 íbúðum.
Hugmyndir byggingarnefndar taka mið af gildandi deiliskipulagi svæðisins, verði því breytt mun byggingarnefndin leita annarra leiða.
2. Framkvæmdir við viðbyggingu Grunnskólans á Ísafirði.
Farið yfir stöðu mála og að mati eftirlitsmanns er verkið á áætlun. Greiðslur til verktaka eru komar í kr. 107.949.520,-.
3. Önnur mál.
Lögð fram greinargerð frá Skarphéðni Jónssyni, skólastjóra, dagsett í apríl 2007, er varðar gólfefni, tækjabúnað o.fl. Greinargerðin verður send til arkitekts til skoðunar.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 12:45.
Þorsteinn Jóhannesson, formaður.
Skarphéðinn Jónsson, skólastjóri.
Svanlaug Guðnadóttir.
Jóhann Birkir Helgason, sviðsstjóri umhverfissviðs.
Jóna Benediktsdóttir.