Byggingarnefnd - 15. fundur - 11. ágúst 2006
Mættir eru Þorsteinn Jóhannesson, Jóna Benediktsdóttir, Skarphéðinn Jónsson og Jóhann Birkir Helgason, er jafnframt ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
1. Aðstaða fyrir danskennslu.
Allar líkur eru á að húsnæði Hamra fáist á leigu til danskennslu, tæknideild falið að semja um leiguverð fyrir húsnæðið.
2. Dægradvöl.
Nefndarmenn eru sammála um að dægradvöl verði í sal grunnskólans til bráðabirgða. Tæknideild falið í samráði við skólastjórnendur að sjá um útfærslu.
3. Breyting á umferð í nágrenni Grunnskólans á Ísafirði.
Byggingarnefndin leggur til við umhverfisnefnd að loka með slá á skólatíma Austurvegi frá Norðurvegi að innkeyrslu bak sundhallar svo og að Aðalstræti verði botnlangi með aðkomu frá Silfurgötu.
4. Önnur mál.
? Gert er ráð fyrir að skólalóðin við Austurveg verði tilbúin á tilsettum tíma, leiktækin koma í 34. viku.
? Byggingarnefndin leggur til að aðskoma ökutækja að mötuneyti grunnskólans verði girt af. Einnig þarf að færa til sorpgám út fyrir skilgreint leiksvæði.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 13:00.
Jóna Benediktsdóttir.
Þorsteinn Jóhannesson
Skarphéðinn Jónsson.
Jóhann Birkir Helgason.