Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 73. fundur - 5. október 2006
Mættir voru: Laufey Jónsdóttir, formaður, Kristrún Hermannsdóttir, Barði Ingibjartsson, og Bryndís G. Friðgeirsdóttir Auk þess sátu fundinn Ingibjörg María Guðmundsdóttir og Júlía Sæmundsdóttir, starfsmenn á Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar.
Kristjana Sigurðardóttir mætti ekki og enginn í hennar stað.
Fundarritari: Ingibjörg María Guðmundsdóttir
1. Trúnaðarmál.
Trúnaðarmál rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók barnaverndarnefndar.
2. Forvarnir og bréf til sveitarstjórna.
Formaður upplýsti um fund er hún átti með bæjarráði Ísafjarðarbæjar í framhaldi af bréfi barnaverndarnefndar um forvarnir í sveitarfélögum. Rætt um afgreiðslu bréfa sem send voru hinum sveitarstjórnunum.
3. Gerð framkvæmdaráætlunar.
Unnið að gerð framkvæmdaáætlunar í barnavernd.
4. Starfsdagur formanna barnaverndarnefnda og Barnaverndarstofu.
Lagt fram bréf frá Barnaverndarstofu þar sem formenn barnaverndarnefnda eru boðaðir til starfsdags þann 6. nóvember n.k. Starfsdagurinn er liður í fræðslustefnu Barnaverndarstofu.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 11:02.
Laufey Jónsdóttir, formaður.
Kristrún Hermannsdóttir.
Barði Ingibjartsson.
Júlía Sæmundsdóttir.
Bryndís G. Friðgeirsdóttir.
Ingibjörg María Guðmundsdóttir.