Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 119. fundur - 17. nóvember 2011
1. Trúnaðarmál.
Fjögur trúnaðarmál rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók barnaverndarnefndar. Hafdís Gunnarsdóttir vék af fundi undir umfjöllun máls nr. 2011110016.
2. Sískráning.
Lagt fram til kynningar yfirlit yfir sískráningu barnaverndar í mars til september 2011.
3. Samtölur 2010.
Lagðar fram til kynningar Samtölur 2010, sem eru eins konar ársskýrsla, sem skilað er frá barnaverndarnefndum til Barnaverndarstofu. Á árinu 2010 voru 172 tilkynningar til barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum.
4. Staðlar fyrir vistun eða fóstur barna.
Lagir fram til kynningar endurskoðaðir staðlar sem Barnaverndarstofa hefur gefið út, fyrir vistun eða fóstur á vegum barnaverndaryfirvalda. Staðlarnir eru ætlaðir til þess að skilgreina verklag, bæta gæði umönnunar og meðferðar og treysta öryggi og rétt barna, sem eru vistuð utan heimilis á Íslandi.
5. Greinargerð um eftirlit með meðferðarheimilum á vegum Barnaverndarstofu, september til desember 2010. 2011-06-0080.
Lögð fram til kynningar greinargerð Jóns Björnssonar, sálfræðings, um eftirlit með meðferðarheimilum á vegum Barnaverndarstofu í september til desember 2010.
Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 11:50.
Rósa Ingólfsdóttir, formaður.
Hafdís Gunnarsdóttir.
Bryndís Friðgeirsdóttir.
Barði Ingibjartsson.
Anna Valgerður Einarsdóttir.
Sædís María Jónatansdóttir.