Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 112. fundur - 2. júní 2010
Mætt voru: Kristjana Sigurðardóttir, formaður, Kristrún Hermannsdóttir og Bryndís Friðgeirsdóttir. Helgi Sigmundsson og Barði Ingibjartsson boðuðu forföll. Að auki sat fundinn Margrét Geirsdóttir, forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu, sem ritaði fundargerð.
1. Frumvarp til barnaverndarlaga.
Tekin fyrir beiðni um umsögn um frumvarp um breytingar á barnaverndarlögum nr. 80/2002, með síðari breytingum.
Barnaverndarnefnd felur starfsmanni að gera athugasemdir við frumvarpið í ljósi umræðna á fundinum.
2. Tilkynning um leyfi til reksturs sumardvalarheimilis/sumarbúða.
Lagt fram til kynningar bréf frá Barnaverndarstofu dags. 31. maí 2010, þar sem tilkynnt er um endurnýjað leyfi til handa Fjölni Ásbjörnssyni, sóknarpresti, til reksturs sumarbúða að Holti í Önundarfirði.
Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 11:40.
Kristjana Sigurðardóttir, formaður
Kristrún Hermannsdóttir
Bryndís Friðgeirsdóttir
Margrét Geirsdóttir, forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu